Sigurður G. Duret skrapp ásamt félaga sínum í vatnaveiði, í vatn sem heitir Geldingartjörn og er í Mosfellsdal
,,Uriðarnir voru hoppandi alveg á fullu og við náðum þremur á land en þeir voru að narta í flugurnar en tóku mjög grannt og vorum að missa nokkra. Það var mikið líf í vatninu og hann var að taka þessar hefðbundu púpur og svo smærri gerðina af flugum. Stoppuðum ekki lengi við en eigum eftir að kíkja við seinna.“ Sagði Sigurður sem er búinn að plana veiði í Bjarnafjarðará á Ströndum og laxveiðitúr í Stóru Laxá í september og svo er verið að plana fleiri túra yfir sumarið.
Veiðistaðalýsing
Í veiðistaðalýsingu um vatnið segir ,,Geldingatjörn er lítið 0.6km² vatn í Mosfellsdal í um 25km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er í um 220 m. yfir sjávarmáli. Vatnið var fisklaust þar til 1950, en þá tóku landareigendur sig til og byggðu stíflu, sem gerði það að verkum að lífskilyrði urðu með besta móti. Árið 1995 brast stíflan og mest allur fiskur dó í vatninu.
Árið 2000 var stíflan endurbyggð, og urriði úr Þingvallavatni settur í vatnið til ræktunnar. Þessi urriði er í dag orðinn sjálfbær. Talsvert er að vænum þriggja punda urriða í vatninu, en þó hafa veiðst stærri fiskar, allt að 16p í Geldingatjörn.“
Umræða