Talsverður erill var hjá LRH í nótt samkvæmt dagbók.
Eftirfarandi eru helstu mál frá því klukkan 17:00. Listinn er ekki tæmandi. 67 mál skráð frá klukkan 17:00. Þegar þetta er ritað gista átta fangageymslur lögreglu vegna ýmissa mála.
Stöð 1
- Ökumaður bifhjóls reyndi að stinga lögreglu af eftir að hafa fengið merki um að stöðva akstur vegna mikils hraða. Bifhjólinu var ekið á rúmlega 200 km/klst hraða á köflum en síðar reyndi ökumaður að stinga lögreglu af með því að aka göngustíga og á gangstéttum. Eftir talsverða eftirför tókst lögreglu að stöðva ökumanninn og verður hann kærður fyrir fjölda umferðarlagabrota, m.a. fyrir að aka án réttinda og fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu um að stöðva.
- Lögregla kölluð til vegna eignaspjalla í skóla á varðsvæðinu en þar var búið að brjóta rúðu.
- Tilkynnt um tvo menn að slást utan við verslun í miðbænum. Lögregla náði tali af báðum mannanna og var annar þeirra vistaður í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins.
- Tilkynnt um öskrandi mann í mjög annarlegu ástandi í miðbænum að sparka út í loftið og slá í bifreiðar. Þegar lögregla ætlaði að ræða við manninn reyndi hann að hlaupa undan lögreglu en var hlaupinn uppi og vistaður í fangageymslu vegna ástands.
- Dyraverðir skemmtistaðar handteknir grunaðir um alvarlega líkamsárás. Málið er í rannsókn en mörg vitni urðu að árásinni.
Stöð 2
- Ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.
- Lögregla kölluð til vegna umferðaróhapps. Í fyrstu var talið að kviknað hefði í bifreiðinni en betur fór en á horfðist og þegar lögregla kom á vettvang var enginn eldur.
Stöð 3
- Lögregla kölluð til vegna þjófnaðar á bensínstöð.
- Lögregla kölluð til vegna æstra aðila sem óskast fjarlægðir úr verslun.
Stöð 4
- Lögregla kölluð til vegna hótana í verslun í hverfinu. Þarna var um að ræða framhald vegna deilna milli aðila.
- Ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
- Ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.
Umræða