• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 11. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Skipt búseta barna – Lög sem jafna stöðu foreldra og styrkja rétt barns

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. október 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Markmið breytinga á barnalögum er að stuðla að sátt og jafnari stöðu foreldra

Dómsmálaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi um breytingar á barnalögum þar sem lagt er  til að foreldrar, sem fara sameiginlega með forsjá barns án þess að búa saman geti samið um skipta búsetu barns við tilteknar aðstæður. Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir breytingum á ýmsum öðrum lögum til að tryggja þau réttaráhrif sem fylgja skiptri búsetu barns. Frumvarpið er endurflutt frá fyrra þingi.

Í framsögu dómsmálaráðherra kom fram að markmið þeirra breytinga sem lagðar væru til í frumvarpinu séu að stuðla að sátt og jafnari stöðu þeirra foreldra sem fara sameiginlega með forsjá barns og ákveða að ala það upp saman á tveimur heimilum. Ekki er gert ráð fyrir að búseta barns verði að vera nákvæmlega jöfn á báðum heimilum, en gert er ráð fyrir því að barn búi álíka jafnt til skiptis hjá foreldrum. Að öðru leyti er það í höndum foreldra að útfæra það fyrirkomulag sem hentar best þörfum barnsins.
Frumvarpið felur í sér almennar breytingar á ákvæðum um framfærslu barns og meðlag sem munu auka samningsfrelsi foreldra. Í frumvarpinu er lagt til að afnema skyldu til að staðfesta samning foreldra um meðlag við skilnað, sambúðarslit eða við ákvörðun um forsjá eða lögheimili barns. Þess í stað er lögð áhersla á að foreldrar sem búa ekki saman beri sameiginlega ábyrgð á framfærslu barns.
Einnig felur frumvarpið í sér að barnalög beri skýrlega með sér þær forsendur sem verða að liggja til grundvallar samningum foreldra um tiltekið fyrirkomulag forsjár, búsetu og umgengni. Í núgildandi lögum er gert ráð fyrir að foreldrar geti samið með ýmsum hætti og er mikilvægt að foreldrar átti sig á því hvenær heimild til að semja um skipta búsetu barns á við.

Aukinn réttur barns til áhrifa á eigin mál

Í frumvarpinu er lagt til það nýmæli að barn geti haft frumkvæði að því að sýslumaður boði foreldra til samtals til að ræða fyrirkomulag forsjár, lögheimilis, búsetu og umgengni. Með breytingunum hefur barn kost á að tjá foreldri afstöðu sína og geta foreldrar eftir atvikum samið um eða gert kröfur um breytingar á fyrirliggjandi ákvörðunum. Með þessu nýja ákvæði í barnalögum er stefnt að því að styrkja rétt barns til að beita sér í málum sem líkleg eru til að hafa grundvallaráhrif á velferð þess og líðan.
Markmið breytinga á barnalögum er að stuðla að sátt og jafnari stöðu foreldra sem fara sameiginlega með forsjá barns og ákveða að ala það upp á tveimur heimilum. Lagt er til að lögfesta ákvæði um heimild foreldra sem ekki búa saman en fara sameiginlega með forsjá barns til að semja um skipta búsetu barns við tilteknar aðstæður. Einnig er lagt til að lögin beri með sér að forsenda þess að foreldrar semji um sameiginlega forsjá verði sú að foreldrar geti unnið saman á fullnægjandi hátt og haft samráð um málefni barns. Þá er lagt til það nýmæli að barn geti haft frumkvæði að því að sýslumaður boði foreldra til samtals til að ræða fyrirkomulag forsjár, lögheimilis, búsetu og umgengni. Að auki er gert ráð fyrir breytingu á ákvæðum um framfærslu og meðlag með áherslu á aukið samningsfrelsi foreldra.
Sjá nánar: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=151&mnr=11

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir handteknir vegna andláts á Selfossi

    Handtekinn fyrir ofbeldi gagnvart opinberum starfsmanni í Kópavogi

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Stjórn Nemendafélags Háskólans á Bifröst lítur brotin alvarlegum augum

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • Lögreglan lýsir eftir Gabríel Douane Boama, 20 ára,

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Líkamsárás – gæsluvarðhald

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?