Vegfarendur í miðbænum hafa vafalítið tekið eftir umfangsmikilli sjóbjörgunaræfingu Landhelgisgæslunnar og Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem fram fór við Hörpu í hádeginu í gær. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og áhafnir sjómælingaskipsins Baldurs, björgunarskipsins Ásgríms S. Björnssonar og björgunarbátsins Stefnis héldu þessa sameiginlegu æfingu í tengslum við ráðstefnuna Hringborð Norðurslóða sem haldin er í Hörpu.
Á æfingunni voru tveir hífðir úr Baldri, tveir úr Ásgrími og tveir úr sjó. Að æfingu lokinni lenti þyrlan í Engey þar sem þátttakendur æfingarinnar fóru úr en viðburðurinn heppnaðist sérlega vel.
Híft úr sjómælingaskipinu Baldri.
Ásgrímur S. Björnsson, Stefnir og TF-GRO við Hörpu.
Um borð í Baldri.
Jóhann Eyfeld, sigmaður, sýnir lipra takta.
Umræða