Gjáin milli þróun ellilífeyris og launa
Enn eina ferðina velur ríkisstjórnin þá leið að veitast að eldri borgurum og bregða fyrir venjubundnum reiknikúnstum. Ríkisstjórnin rökstyður mál sitt með fullyrðingu um að frá janúar 2017 til júlí í ár hafi neysluvísitalan hækkað um 10,6% en bætur almannatrygginga um 20,5%. Þessi forsenda er röng, enn eina ferðina bregða þingmenn fyrir falsútreikningum. Óskertur ellilífeyrir hefur á þessu tímabili nefnilega hækkað um 12,3%, ekki 20.5%. Þetta segir Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Guðmundur deilir frétt Vísis frá því í gær þar sem greint var frá launahækkunum þingmanna og ráðherra um áramótin.
Ef fullyrðing ríkisstjórnarinnar væri reist á réttum útreikningum liti dæmið svona út :
Ellilífeyririnn var 228.734.- kr. árið 2017. Ef við hækkum þá tölu um 20,5%, eins og ríkisstjórnin fullyrðir, þá væri ellilífeyririnn í dag 275.600.- kr. En ellilífeyririnn er hins vegar í dag einungis 256.789 kr.
Ef réttur ellilífeyrir væri hækkaður um 3,6% eins reiknað er með í fjárlagafrumvarpinu þá ætti hann að hækka í 285.500.- kr. Ríkisstjórnin hafnar sáttatillögu eldri borgara um að lífeyrir hækki jafnmikið og önnur laun eða um 15.750.- og ellilífeyrinn yrði þá 272.539.- kr. Ríkisstjórnin ætlar hins vegar að hækka ellilífeyri einungis um 9.244.- kr. þeas í 266.033.- kr. Það vantar þannig 19.467.- kr. upp á að ellilífeyririnn væri eins hann ætti að vera.
Siðblindan á fullu stími
Ríkisstjórninn heldur áfram að svíkja eldri borgara með ómerkilegum reiknikúnstum. Það er ekki nóg að leggja allt að 80% jaðarskatta á þann sparnað sem launamenn eiga í lífeyrissjóðum. Gjáin milli þróun ellilífeyris og launa á vinnumarkaði hefur farið vaxandi s.l. 4. ár.
Ríkisstjórnin stefnir á að skilja ellilífeyrisþega eina eftir og hafnar því að ná sátt við þennan sem á engan málsvara, hefur ekki samningsrétt og er því algjörlega háður ákvörðun stjórnvalda. Það verður áhugavert á heyra af tillögum um launahækkanir alþingismanna sem eiga að koma til framkvæmda um n.k. áramót.
Ríkisstjórninni finnst nóg að henda 9.244 kr. í eldri borgara en Katrín finnst eðlilegra að hrifsa til sín 73.000 auk fulls jólabónus!! Siðblindan á fullu stími.
.
https://gamli.frettatiminn.is/11/12/2020/milljarda-jolagjof-til-hinna-rikustu-their-sem-falla-af-atvinnuleysisbotum-thurfa-ad-treysta-a-fjarhagsadstod/
Umræða