Alvarleg líkamsárás í Fjölsmiðjunni í Kópavogi þar sem að eggvopni var beitt
Átján ára piltur var handtekinn í Kópavogi um hádegisbil, en hann hafði stungið pilt á sama aldri í Fjölmiðjunni í Kópavogi í hádeginu í dag.
Sá sem fyrir árásinni varð var fluttur á slysadeild en ekki fást nánari upplýsingar um líðan hans að svo stöddu.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu að sögn lögreglu.
Umræða