Hvernig bragðast lax sem borðar skordýr?
Á miðvikudaginn 22. janúar fer fram formleg smökkun á eldislaxi í húsakynnum Matís ohf. Það sem gerir þennan lax sérstaklega áhugaverðan er að hann var alinn á fóðurblöndu sem inniheldur skordýr.
Í verkefninu Metamorphosis, sem er leitt af Birgi Erni Smárasyni hjá Matís, er unnið að því að breyta lífrænum úrgangi í verðmætt hráefni til að nýta í fiskeldisfóður. Skortur á próteinríku fóðri hefur kallað eftir nýjum lausnum til að mæta vaxandi eftirspurn iðnaðarins. Yfir helmingur allra fisktegunda er nú ræktaður með fiskeldi og er líklegt að framleiðslan muni tvöfaldast á næstu 15 árum.
Rannsóknir hafa sýnt að skordýr henta mjög vel í fóðurframleiðslu fyrir fisk, en margar skordýrategundir hafa þann eiginleika að geta breytt lífrænum úrgangi í fæðu sem er rík af fitum og próteinum. Verkefnið skoðar sérstaklega þróun á nýju fóðurhráefni sem unnið er úr skordýrum sem hægt væri að nýta til að bregðast við auknum próteinskorti í Evrópu með sjálfbærum hætti.
Nú fer þessu rannsóknarverkefni senn að ljúka og það eina sem er í raun eftir er athuga hvernig eldislax sem hefur verið fóðraður með þessari nýstárlegu fóðurblöndu smakkast.
Smökkunin fer sem fyrr segir fram í Matís, á Vínlandsleið 12, á þriðju hæð í tilraunaeldhúsinu á milli 12 og 13. Það væri gaman að sjá þig þar og þér er að sjálfsögðu boðið að smakka.
Vefsíða verkefnisins er á vefsíðu EIT Food:
https://www.eitfood.eu/innovation/projects/metamorphosis-enhanced-insect-protein-for-aquaculture-2019