• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 15. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Þórarinn G. Pétursson skipaður í embætti varaseðlabankastjóra peningastefnu

Þórarinn G. Pétursson skipaður í embætti varaseðlabankastjóra peningastefnu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. janúar 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur skipað Þórarin G. Pétursson í embætti varaseðlabankastjóra peningastefnu til fimm ára frá og með deginum í dag.

Embættið var auglýst laust til umsóknar 19. september sl. og bárust sjö umsóknir en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka. Ráðgefandi hæfnisnefnd mat Þórarin einn umsækjenda mjög vel hæfan til að gegna embættinu en aðrir umsækjendur voru ýmist metnir vel hæfir eða hæfir. Forsætisráðuneytið lagði sjálfstætt mat á störf hæfnisnefndar og umsækjendur voru allir teknir í viðtal hjá forsætisráðherra. Var það niðurstaða forsætisráðherra að Þórarinn væri hæfastur til að gegna embættinu.

Þórarinn er með Cand. Oecon próf í hagfræði frá Háskóla Íslands, meistarapróf í hagfræði frá Essex-háskóla í Bretlandi og doktorspróf í hagfræði frá Árósa-háskóla í Danmörku.

Þórarinn hefur starfað í Seðlabanka Íslands frá árinu 1994. Hann hefur verið aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræði- og peningastefnusviðs frá árinu 2009 og sat í peningastefnunefnd bankans á árunum 2009-2019. Áður starfaði hann m.a. sem forstöðumaður rannsóknar- og spádeildar hagfræðisviðs og sem deildarstjóri hagrannsókna. Þá hefur hann um árabil ritstýrt Peningamálum þar sem Seðlabankinn gerir grein fyrir mati sínu á stöðu og horfum í efnahags- og peningamálum.

Þórarinn býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu á fjármálastarfsemi og efnahags- og peningamálum. Hann hefur umtalsverða reynslu af háskólakennslu í hagfræði og hefur sem aðalhagfræðingur stýrt hagfræðigreiningum og spágerð Seðlabankans. Þá hefur hann ritað fjölda fræðigreina, rannsóknarritgerða og bókarkafla sem birst hafa í innlendum og erlendum vísindaritum. Þórarinn hefur einnig mikla reynslu af alþjóðlegu samstarfi í gegnum stofnanir á borð við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) og Efnahags- og framfarastofnunina (OECD) og erlenda seðlabanka.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Grillmarkaðurinn er fyrsta flokks veitingastaður – Frábærar veitinga og þjónusta

    Alvarleg líkamsárás – tveir í gæsluvarðhaldi

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Samtök um karlaathvarf -„ekki réttu aðilarnir til að hljóta styrk“

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Stórútgerðin greiðir himinhá veiðigjöld erlendis

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Strok bleikju úr landeldisstöð

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Það er eitthvað brotið í íslenska menntakerfinu“

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?