Bankarnir greiða út 69 milljarða í arð – meira en kjarasamningar kostuðu!

Það er galið að horfa upp á það að Arion banki, Íslandsbanki og Kvika séu að greiða hluthöfum sínum samtals 50 milljarða króna í arð á næstu misserum – en nú hefur Landsbankinn einnig tilkynnt að hann muni greiða 19 milljarða í arðgreiðslu.
Samtals nema arðgreiðslur þessara fjögurra banka því 69 milljörðum króna – meira en sjálfir kjarasamningarnir kostuðu! Til samanburðar var fullyrt að stöðugleikasamningarnir, sem gerðir voru í mars í fyrra og kostuðu 60 milljarða, væru nauðsynlegir til að tryggja efnahagslegan stöðugleika.
Þetta fjármagn kemur ekki úr lausu lofti – það er rifið út úr vösum almennings með okurvöxtum, himinháum þjónustugjöldum og gríðarlegum vaxtamun sem bankarnir græða óhikað á. Á meðan heimili og fyrirtæki berjast við að ná endum saman, moka bankarnir hagnaði sínum í vasa fjárfesta í stað þess að lækka kostnað fyrir almenning.
Ætlar ríkisstjórn sem kennir sig við félagshyggju, réttlæti og jöfnuð að láta þetta átölulaust? Því þessi græðgisvæðing í bankakerfinu er ekkert annað en dulin skattlagning á launafólk, heimili og almenning!