• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 16. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Brottvísanir erlendra fanga frá landinu

Brottvísanir erlendra fanga frá landinu

Drög að frumvarpi um brottvísanir erlendra fanga í samráðsgátt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. febrúar 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Dómsmálaráðherra hefur birt í samráðsgátt drög að frumvarpi til breytinga á lögum um fullnustu refsinga. Frumvarpið felur í sér endurskoðun á ákvæðum laga sem varða reynslulausn og fullnustu refsinga utan fangelsa, í þeim tilvikum þar sem fyrir liggur að erlendum föngum með lítil eða engin tengsl við Ísland verði brottvísað í kjölfar afplánunar.

Lögð er til tímabundin heimild til 1. júlí 2027 til að veita erlendum föngum, sem endanlega hefur verið ákveðið að vísa úr landi að afplánun lokinni, reynslulausn þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn í stað helmings samkvæmt gildandi lögum. Við reynslulausn verður viðkomandi vísað úr landi þegar í stað.

„Skilaboðin eru skýr. Alvarleg afbrot hér á landi hafa raunverulegar og langvarandi afleiðingar. Þegar ákvörðun um brottvísun liggur fyrir og afplánun lýkur verður brotamönnum vísað strax úr landi og þeir fá endurkomubann til Íslands og eftir atvikum alls Schengen-svæðisins. Þannig tryggjum við að fangelsisrými nýtist þar sem þess er raunverulega þörf og að brottvísanir séu ekki aðeins orð á blaði heldur raunveruleg aðgerð,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Um er að ræða tímabundna aðgerð er ætlað að bregðast hratt við alvarlegri stöðu í fangelsum landsins og breyttri samsetningu fanga með það markmið að stytta boðunarlista og draga úr líkum þess að dæmdar refsingar fyrnist á meðan unnið er að frekari uppbyggingu og fjölgun afplánunarrýma.

Ákvörðun um brottvísun erlends ríkisborgara að afplánun lokinni fylgir ávallt bann við endurkomu til Íslands. Hafi viðkomandi ekki rétt til búsetu í öðru Schengen-ríki tekur bannið einnig til Schengen-svæðisins í heild. Slík ráðstöfun er íþyngjandi, hefur víðtækar afleiðingar fyrir viðkomandi og felur í sér verulegan fælingarmátt.

Á sama tíma er lagt til að þeir sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi geti ekki afplánað refsingu á áfangaheimili eða undir rafrænu eftirliti líkt og aðrir fangar. Slík úrræði eiga aðeins við þegar markmiðið er aðlögun að íslensku samfélagi, sem á ekki við um þá sem ljóst er að  hafi engin eða lítil tengsl við landið og muni yfirgefa landið að afplánun lokinni.

Uppsafnaður vandi í fangelsum

Fangelsi landsins eru rekin við fulla nýtingu og svigrúm til að taka við nýjum föngum er verulega takmarkað. Samsetning fangahópsins hefur jafnframt breyst hratt. Hlutfall erlendra ríkisborgara í gæsluvarðhaldi hefur aukist verulega og stór hluti þeirra sem nú eru vistaðir í fangelsum eru einstaklingar með lítil eða engin tengsl við íslenskt samfélag. Oft er um að ræða einstaklinga sem framið hafa alvarleg brot.

„Fangelsiskerfið hefur á skömmum tíma tekið miklum breytingum. Samsetning fangahópsins er orðin fjölbreyttari en áður og í einstökum tilvikum hafa einstaklingar af yfir tuttugu ólíkum þjóðernum verið vistaðir samtímis í sama fangelsi. Það skapar ýmsar áskoranir, m.a. við að tryggja öryggi starfsmanna og fanga. Með frumvarpinu erum við að bregðast við þessari þróun með skýrum hætti. Þetta mun hafa jákvæð áhrif sem fyrst og fremst mun birtast í styttingu boðunarlista og því að fleiri geti hafið afplánun,“ segir ráðherra.

Um árabil hefur verið uppsafnaður vandi í fangelsum landsins með þeim afleiðingum að ekki hefur tekist að framfylgja öllum dómum innan hæfilegs tíma. Afleiðingin er sú að boðunarlistar hafa lengst og dómar fyrnst í vaxandi mæli. Í árslok 2025 biðu 743 einstaklingar afplánunar refsingar, þar af 357 eftir afplánun í fangelsi. Þrátt fyrir fyrri lagabreytingar og rýmkun úrræða utan fangelsis hefur ekki tekist að ná tökum á stöðunni.

Frumvarpsdrögin má nálgast í samráðsgátt stjórnvalda og er umsagnarfrestur til og með 25. febrúar næstkomandi.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Af hverju í ósköpunum ættum við að rukka þig fyrir að nota peningana þína?“

    444 deilingar
    Share 178 Tweet 111
  • Heimilt að segja upp starfmanni án áminningar

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Svaf á bókasafni og neitaði að vakna – lögreglan skarst í leikinn

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Bílastæðabraskið – brýnt að fljótt verði gripið til aðgerða til varnar neytendum

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Ný reglugerð um strandveiðar hefur tekið gildi

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?