• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 12. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Foreldraofbeldi í íþróttum og vanhæfni viðbragðsaðila

Breytingar á listamannalaunum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. mars 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0
Drög að breytingum á lögum um listamannalaun, nr. 57/2009,  hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar í samræmi við þá stefnu ríkisstjórnarinnar, sem fram kemur í sáttmála stjórnarflokkanna um ríkisstjórnarsamstarf, að unnið skuli að því að styrkja faglega starfslauna- og verkefnasjóði listamanna með sérstakri áherslu á að starfslaunin tryggi betur afkomu þeirra sem starfa í listum eða við skapandi greinar. Fjöldi starfslauna hefur haldist óbreyttur í 15 ár eða frá því að gildandi lög tóku gildi árið 2009.

Breytingar í frumvarpinu fela í sér fjölgun launasjóða sem starfslaun eru veitt úr og fjölgun árlegra úthlutunarmánaða. Starfslaunamánuðum yrði fjölgað úr 1.600 í 2.850 á 4 árum og mun því tæplega tvöfaldast. Lagt er til að þremur nýjum sjóðum verði bætt við kerfið; Launasjóði kvikmyndahöfunda, Vexti sjóði 35 ára og yngri og Vegsemd sjóði listamanna 67 ára og eldri.

Kostnaður við listamannalaunin eru í dag 978 milljónir. Breytingarnar verða innleiddar í skrefum á árunum 2025-2028 og er ráðgert að viðbótarkostnaður verði í heildina 700 milljónir þegar fullri hækkun er náð. Þá er heildarkostnaðurinn 1678 milljónir.

Breytingarnar verða innleiddar í skrefum á árunum 2025-2028 og er ráðgert að kostnaður verði eftirfarandi:

2025: 124 millj. kr.
2026: 280 millj. kr.
2027: 490 millj. kr.
2028: 700 millj. kr.

Saga listamannalauna á Íslandi

Saga starfslauna nær allt aftur til 1891 þegar Alþingi samþykkti að veita skáldalaun. Stuðningur við listamenn nær allt til síðustu áratuga 19. aldar með einstökum fjárveitingum til þeirra. Árin 1886 og 1887 var til að mynda Guðrúnu Waage veittur styrkur til að nema sönglist og árið 1891 var Matthíasi Jochumssyni veitt skáldalaun og Torfhildi Hólm var veittur styrkur til ritstarfa. Lög um listamannalaun voru hins vegar fyrst sett árið 1967 og um áratug síðar voru sett lög um launasjóð rithöfunda. Þessi tvenn lög voru leyst af hólmi með nýjum lögum um listamannalaun sem sett voru árið 1991 og síðan með gildandi lögum frá 2009. Fyrirliggjandi tillaga um breytingar á lögunum er því fyrsta efnislega endurskoðunin frá árinu 2009.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Eru vegtollar lausnin?

    Hringveginum verður lokað í báðar áttir

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Strandveiðimenn mótmæla stjórnarandstöðunni við Alþingi, í dag og á morgun

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

    463 deilingar
    Share 185 Tweet 116
  • Ríflega 150% verðmunur á fiski – Veiðigjöld greidd í samræmi við heimatilbúið tombóluverð

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Málþóf minnihlutans stöðvað

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?