Eftir hreint ótrúlegar viðtökur kvaddi hinn margrómaði söngleikur um ævi Ellyjar Vilhjálms sviðið nýverið. Sýningin sló öll met í aðsókn, þau ár sem hún var sýnd fyrir fullum sal í Borgarleikhúsinu og naut fádæma vinsælda.
Söngleikurinn um Elly hefur verið svo vinsæll undanfarin ár að Katrín Halldóra varð að koma aftur á Stóra sviðið sem Elly Vilhjálms eftir að fyrra tímabili sýningarinnar lauk. Aðsóknin var slík að rómaðri sýningu Gísla Arnar Garðarssonar eftir handriti Gísla og Ólafs Egils Egilssonar.
Katrín Halldóra Sigurðardóttir fór með hlutverk Ellyar í sýningunni og leikur hennar var hreint út sagt frábær og fékk allar mögulegar stjörnur fyrir bæði söng og leik og í raun var eins og Elly og Raggi Bjarna stæðu á sviðinu. Því bæði Katrín Halldóra og Björgvin Franz Gíslason sem leikur Ragga Bjarna heitinn, í sýningunni, voru stórkostleg.
Björgvin Frans túlkaði stórkostlega alla takta Ragga Bjarna og beitti þeim af einstakri snilld. Björgvin Frans átti stórleik í þessari sýningu og var það mat Fréttatímans og leikhúsgesta sem rætt var við, að í sýningunni sáu áhorfendur persónulegan leiksigur Björgvins Frans.
Leikstjórinn Gísli Örn Garðarsson fær sérstakar þakkir fyrir frábæra leikstjórn og sýninguna sem hefur slegið öll met og var fimm stjörnu meistarastykki.
Um Elly

Elly bjó yfir óræðri dulúð og töfraði áhorfendur með söng sínum og leiftrandi persónuleika; túlkunin hógvær og ígrunduð, röddin silkimjúk og hlý. Líf Ellyjar varð stundum efni í sögusagnir og slúður sem hún hirti lítið um að svara því hún var dul og forðaðist sviðsljós fjölmiðlanna.
Í þessari mögnuðu sýningu fetaði Katrín Halldóra í fótspor einnar dáðustu söngkonu þjóðarinnar og syngur sig inn í hjörtu áhorfenda sem aldrei fyrr.
,,Fimm stjörnu meistarastykki“
Svo vel gekk að sýningin sló áhorfendamet í Borgarleikhúsinu í júní árið 2019, en hún var frumsýnd þann 18. mars 2017. Áhorfendafjöldinn var þá 104.446 að lokinni lokasýningu.
Fréttatíminn gaf sýningunni og öllum sem að henni stóðu, fimm stjörnur af jafn mörgum mögulegum.