Helstu tíðindi LRH frá tímabilinu 17:00 – 05:00. Þegar þetta er ritað eru þrír aðilar sem gista í fangageymslu lögreglu Alls eru 57 mál skráð í kerfinu á umræddu tímabili. Eftirfarandi upptalning er því ekki tæmandi.
Lögreglustöð 1 – Austurbær- Miðbær-Vesturbær-Seltjarnarnes:
- Tilkynnt um þjófnað úr matvöruverslun, aðili var í mjög annarlegu ástandi og veittist að starfsmönnum, aðilinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna ástands hans.
- Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna, látin laus að blóðsýnatöku lokinni.
- Tilkynnt um samkvæmishávaða í heimahúsi, lögregla fór á vettvang og bað húsráðanda að lækka.
Lögreglustöð 3 – Kópavogur- Breiðholt:
- Tilkynnt um þjófnað úr matvöruverslun, lögregla fór á vettvang, málið var leist með vettvangsskýrslu.
- Tilkynnt um innbrot á kaffihúsi, gerandi farin af vettvangi þegar lögregla kom, málið í rannsókn.
Lögreglustöð 4 – Grafarvogur- Mosfellsbær- Árbær:
- Tilkynnt um eld í íbúð í fjölbýli, lögregla fór á vettvang ásamt slökkviliði, Allir voru komnir út úr íbúðinni þegar lögreglu og slökkviliði bar að garði.
Það kviknaði í út frá kerti og tókst slökkviliði að slökkva eldinn, var ekki þörf á frekari rýminu úr húsinu.
Umræða

