• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ísland brotlegt vegna talningarklúðurs í NV-kjördæmi – Úrskurður Mannréttindadómstóls Evrópu

Ísland brotlegt vegna talningarklúðurs í NV-kjördæmi – Úrskurður Mannréttindadómstóls Evrópu

Öll yfir­kjör­stjórnin var með réttar­stöðu sak­borninga - Íslands­deild Tran­sparency International lýsti yfir von­brigðum með brota­löm og mögu­legt lög­brot við taln­ingu atkvæða - Talningin kærð bæði til lögreglu og kjörbréfanefndar Alþingis

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. apríl 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur úrskurðað að íslenska ríkið hafi brotið gegn réttinum til frjálsra kosninga og skilvirkra réttarúrræða við alþingiskosningar 2021. Úrskurður dómstólsins var kveðinn upp í morgun. Kosningaklúðrið snérist um endurtalningu í Norðvesturkjördæmi en þá misstu fimm frambjóðendur þingsæti sitt og aðrir fimm fengu sæti.

Sem kunnugt er var töluvert misræmi á milli talninga í norðvesturkjördæmi eftir alþingiskosningarnar. Til að mynda þá fjölgar atkvæðaseðlum um tvo í endurtalningunni. Þá fækkar auðum atkvæðaseðlum um tólf milli talninga, en ógildum fjölgar um ellefu. Viðreisn missir níu atkvæði milli talninga, atkvæðum Sjálfstæðisflokks fjölgar um tíu, Miðflokkur missir fimm en Framsókn fær fimm til viðbótar. Tveir frambjóðendur, Guðmundur Gunnarsson, oddviti Viðreisnar í kjördæminu, og Magnús Davíð Norðdahl, ooddviti Pírata, leituðu til dómstólsins. Íslenska ríkinu var gert að greiða hvorum þeirra 13.000 evrur, eða sem nemur tæpum tveimur milljónum króna.

Öll yfir­kjör­stjórnin var með réttar­stöðu sak­bornings

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, f.v. dómsmálaráðherra, skipaði Inga Tryggvason í embætti dómara við Héraðsdóm Reykjaness frá 31. ágúst 2020 þar sem hann starfar

Inga Tryggvasyni var samt alveg kunnugt um ákvæði kosningalaga samkvæmt viðtali sem tekið var við hann þegar málið var til umfjöllunar. Þá gerði hann lítið úr gildi innsiglanna. „Þessi innsigli eru afar ómerkileg. Ef einhver vill svindla þá gera þessi innsigli ekkert gagn. Jafnvel þó það væru almennileg innsigli, ef menn ætla að svindla í kosningum þá svindla þeir í kosningum,“ sagði hann við DV og sama dag kallaði hann innsiglin „límband“ í samtali við Fréttablaðið.

Það geta verið 50 lyklar að þessu plássi, ég veit það ekki.“ Sagði Ingi Tryggvason

Í samtali við Stundina sagðist hann síðan ekki hafa minnstu hugmynd um hversu margir lyklar væru að inngöngum að salnum á Hótel Borgarnesi þar sem talningin fór fram og kjörgögn voru geymd í án innsigla. „Þetta er hluti af hótelinu, þetta er ekki húsnæði sem yfirkjörstjórn á. Það geta verið 50 lyklar að þessu plássi, ég veit það ekki.“ Sagði Ingi Tryggvason.

Framganga Inga þegar hann hefur svarað fyrir talninguna hefur vakið nokkra athygli. Á sunnudag, daginn eftir kosningar, sagðist hann í samtali við Vísir.is ekki hafa innsiglað kjörgögn eftir upphaflegu talninguna eins og kosningalög gera ráð fyrir, og bar fyrir sig hefð.

„Já, ekki innsigluð. Það hefur aldrei verið gert. Þau eru bara skilin eftir og læst inn í salinn. Svo förum við heim og hvílum okkur í smá tíma og förum aftur á staðinn. Þetta er bara vinnulag sem er búið að vera eins lengi og ég veit. Það er ekkert innsiglað, það er engin aðstaða til að innsigla þetta,“ sagði hann við Vísi.

Ingi Tryggvason hafði engar áhyggjur á meðan óviðkomandi fólk gekk inn og út um sal þar sem kjörseðlar voru geymdir 

„Ég hef engar áhyggjur af geymsl­unni á þessum gögn­um. Það er algjör­lega 100 pró­sent og meira en það að það fór eng­inn inn svæðið þennan stutta tíma sem að eng­inn úr yfir­kjör­stjórn var þarna stadd­ur,“ sagði Ingi við frétta­mann RÚV þetta sama kvöld.

Þannig að þetta er ein­göngu mis­taln­ing? „Ein­göngu það, það er eng­inn vís­bend­ing um að óvið­kom­andi hafi farið inn á þetta svæði, það bara gerð­ist ekki.“

Mannréttindadómstóll Evrópu

Í sömu frétt var haft eftir Krist­ínu Edwald, for­manni lands­kjör­stjórn­ar: „Þetta er baga­legt mál, þetta er mjög óheppi­legt. Trú­verð­ug­leiki kosn­inga er auð­vitað gíf­ur­lega mik­il­vægur og þess vegna höfum við í raun þessa þrjá örygg­is­ventla.“

Þvert á það sem Ingi Tryggvason hafði haldið fram, var ekki 100 prósent öruggt að fólk hefði ekki farið inn á svæðið, þá voru birt myndbönd sem sýndu að fólk var að ganga inn og út um salinn yfir langt tímabil. Að auki hófst meðhöndlun atkvæða í norðvesturkjördæmi á sunnudag áður en allir meðlimir kjörstjórnar voru mættir á staðinn, og áður en umboðsmenn listanna mættu. Þeim upplýsingum var komið til lögreglu samkvæmt öruggum heimildum DV.

Kjörseðlar í öllum kjördæmum nema norðvesturkjördæmi voru innsiglaðir eftir fyrstu talningu. Hluti kjörstjórnar neitaði að undirrita fundargerð vegna talningarinnar. Minnst hluti kjörstjórnar hafði þá þegar farið í skýrslutöku hjá lögreglu vegna framkvæmdar talningarinnar en Karl Gauti Hjaltason kærði hana til lögreglu. Karl Gauti féll úr jöfnunarsæti fyrir Miðflokkinn við endurtalninguna.

Talningin kærð bæði til lögreglu og kjörbréfanefndar Alþingis

Inga Tryggva­syni, for­manni yfir­kjör­stjórn­ar, var gert að greiða 250.000 króna sekt vegna ógæti­legr­ar meðferðar kjör­seðla við alþing­is­kosn­ing­arn­ar en aðrir í kjör­stjórn fengu 150.000 króna sekt á mann. Ingi sagð­ist vita til þess að einn til viðbót­ar í kosn­inga­stjórn­inni hafi fengið bréf frá lög­regl­unni af sama til­efni og bú­ast við því að all­ir fimm í kjör­stjórn­inni muni fá slíkt bréf.

„Ég átti svosem alltaf von á þessu“ sagði Ingi Tryggvason, og er hann var spurður hvort að ein­hvern tím­ann hafi komið til greina að greiða sekt­ina sagði Ingi: „Nei, aldrei nokk­urn tím­ann“.

Staðan í þessu máli var sú að ef sakborningurinn Ingi Tryggvason hefði ekki fallist á að greiða sektina, hefði lögreglustjórinn á Vesturlandi orðið að ákveða hvort hann gæfi út ákæru og málið myndi þá rata fyrir dómstóla með hugsanlegri fangelsisvist.

Niðurstaðan varð sú að lög­reglu­stjór­inn á Vest­ur­landi felldi niður mál Inga Tryggva­son­ar, fyrr­ver­andi for­manns yfir­kjör­stjórn­ar Norðvest­ur­kjör­dæm­is, fyr­ir brot á kosn­inga­lög­um. Byggði hann ákvörðun sína á lögum sem voru sett eftir kosningarnar og taldi Björn Levi Gunnarsson, þingmaður Pírata það stórfurðulegt. ,,Lögreglustjórinn hefur tekið kolranga ákvörðun, honum bar að dæma eftir gildandi lögum á þeim tíma sem brotið fór fram“ Hann sagðist næstum orðlaus vegna niðurstöðunnar. Ekki síst þar sem lögreglustjórinn vísaði ranglega til nýrra kosningalaga.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, skipaði Inga Tryggvason í embætti dómara við Héraðsdóm Reykjaness frá 31. ágúst 2020, þar sem hann starfar enn sem dómari. Árið 2006 var Ingi formaður stjórnar fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Mýrarsýslu.

Stjórnarskrárfélagið skoraði á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra til að segja af sér vegna framgöngu Alþingis gagnvart lýðræði í landinu. Formaður félagsins sagði Alþingi hafa höggið varanlegt skarð í traust kjósenda gagnvart löggjafarvaldinu.

Stjórnarskrárfélagið sendi frá sér ályktun sem var samþykkt á aðalfundi félagsins. Fram kemur í ályktuninni að félagið fordæmi framgöngu Alþingis gagnvart lýðræði í landinu og skori á forsætisráðherra að taka fulla ábyrgð á þeirri afstöðu sinni að hafa greitt atkvæði með því að nýliðnar alþingiskosningar skyldu standa, þrátt fyrir alvarleg brot á kosningalögum.

„Í ljósi atburða síðustu daga skorar félagið á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra að segja af sér ef Mannréttindadómstóll Evrópu kemst að þeirri niðurstöðu að með staðfestingu kosninganna hafi Ísland gerst brotlegt gegn Mannréttindasáttmála Evrópu,“ segir í ályktuninni.

Íslands­deild Tran­sparency International lýsti yfir von­brigðum með brota­löm og mögu­legt lög­brot við taln­ingu atkvæða í alþing­is­kosn­ingunum og lýsyi yfir sér­stökum áhyggjum af við­brögðum Inga Tryggva­son­ar, for­manns yfir­kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, eftir að ljóst var að lögum um fram­kvæmd taln­ingar var ekki fylgt.

„For­mað­ur­inn hefur ítrekað gert lítið úr mál­inu í fjöl­miðlum og gefið til kynna opin­ber­lega að hann telji skoð­anir sínar og ákvarð­anir ekki þurfa að byggja á lög­um. Ljóst er að gáleys­is­leg og ólög­mæt með­ferð kjör­gagna við taln­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi getur ein og sér verið ástæða til að krefj­ast end­ur­tekn­ingar kosn­ing­anna þar,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Íslands­deild Tran­sparency í dag.

Í yfir­lýs­ing­unni segir einnig að atburða­rás und­an­far­inna daga hafi „varpað ljósi á þá sér­kenni­legu og frá­leitu máls­með­ferð að nýkjörið Alþingi hafi end­an­legt úrskurð­ar­vald um rétt­mæti kosn­ing­anna“.

Þetta segir Tran­sparency að geti „leitt til geð­þótta­á­kvarð­ana þing­manna sem hags­muna eiga að gæta“ og sé úrelt fyr­ir­komu­lag, sem Mann­rétt­inda­stóll Evr­ópu (MDE) hafi úrskurðað gegn. Seg­ist Tran­sparency á Íslandi taka undir sjón­ar­mið um að þessu verði að breyta svo fljótt sem auðið verð­ur.

Í yfir­lýs­ingu Íslands­deild­ar­in­anr segir að kjör­stjórn­ar­full­trúar verði að „um­gang­ast þá ábyrgð sem þeim er falin af virð­ingu, “ bæði hvað fram­kvæmd­ina sjálfa varðar og svo fram­komu og svör til almenn­ings ef upp koma spurn­ing­ar.

„Vert er að nefna að við setn­ingu laga um kosn­ingar til Alþingis þótti lög­gjaf­inn ástæðu til þess að leggja refs­ingu við því ef kjör­stjórn van­rækir fyr­ir­skip­aða fram­kvæmd laga um kosn­ingar til alþing­is, sbr. 124. gr. lag­anna. End­ur­speglar það þá miklu ábyrgð sem fylgir störfum við fram­kvæmd kosn­inga,“ segir í yfir­lýs­ingu sam­tak­anna.

Ályktun Stjónrarskrárfélgasins má lesa í heild sinni hér að neðan:

Aðalfundur Stjórnarskrárfélagsins skorar á forsætisráðherra að segja af sér.

Stjórnarskrárfélagið fordæmir framgöngu Alþingis gagnvart lýðræði í landinu og skorar á forsætisráðherra að taka fulla ábyrð á þeirri afstöðu sinni að greiða atkvæði með því að nýliðnar alþingiskosningar skyldu standa, þrátt fyrir alvarleg brot á kosningalögum.

Í ljósi atburða síðustu daga skorar félagið á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra að segja af sér ef Mannréttindadómstóll Evrópu kemst að þeirri niðurstöðu að með staðfestingu kosninganna hafi Ísland gerst brotlegt gegn Mannréttindasáttmála Evrópu.

Ákvörðun Alþingis heggur stórt og varanlegt skarð í traust kjósenda gagnvart sjálfu löggjafarvaldinu, enda óumdeilt að umfangsmikil lögbrot áttu sér stað í talningu og meðferð atkvæða í Norðvesturkjördæmi. Öryggisreglurnar sem brotnar voru eiga að tryggja að almenningur geti treyst niðurstöðum lýðræðislegra kosninga.

Brot Alþingis gegn lögum og grundvallarforsendum lýðræðisins er enn alvarlegra í ljósi þess að í nær 9 ár hefur þingið hunsað niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um að tillögur stjórnlagaráðs skuli vera grundvöllur nýrrar stjórnarskrár Íslands. Þar er úreltu fyrirkomulagi um að Alþingi úrskurði um eigin kosningar breytt og séð til þess aðúrskurði um lögmæti kosninga megi vísa til dómstóla.

Það að Alþingi hafi hunsað niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá í bráðum áratug, eykur enn á alvarleika þess að láta sérhagsmuni þingmanna ganga framar landslögum og þeim ríku hagsmunum sem þjóðin hefur af því að geta treyst niðurstöðum lýðræðislegra kosninga. Alþingi hefur með öðrum orðum tekið sér vald umfram það sem borgarar þessa lands vilja veita þinginu. Þessi valdtaka þingsins gengur þvert á þá grundvallarreglu að þjóðin sé uppspretta alls opinbers valds.

Valdi fylgir ábyrgð. Forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, tók á móti 43.423 staðfestum undirskriftum kjósenda þann 20. október 2020 þar sem þess var krafist að úrslit kosninganna um nýja stjórnarskrá árið 2012 yrðu virt. Líkt og úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar hefur forsætisráðherra haft þessar undirskriftir að engu. Af stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar er augljóst að áfram skal haldið á sömu braut og af sömu vanvirðingu við lýðræðislega stjórnarhætti og áður.

Með því að greiða því atkvæði að niðurstöður kosninga í Norðvesturkjördæmi skuli standa þrátt fyrir alvarlega annmarka og lögbrot hefur Katrín Jakobsdóttir gerst samábyrg meiri hluta þingsins. Þess vegna skorar Stjórnarskrárfélagið á hana að segja tafarlaust af sér embætti ef Mannréttindadómstóll Evrópu kemst að þeirri niðurstöðu að hún hafi með atkvæði sínu tekið þátt í að gera Ísland brotlegt gegn rétti borgara landsins til frjálsra kosninga.

Sigríður Andersen, þáverandi dómsmálaráðherra, sagði af sér vegna niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu svokallaða. Rétt er að Katrín Jakobsdóttir geri slíkt hið sama ef ákvörðun Alþingis fer í bága við Mannréttindasáttmálann. Æðsta handhafa framkvæmdavaldsins ber að axla ábyrgð á gjörðum sínum.

Samþykkt einróma á aðalfundi Stjórnarskrárfélagsins þann 28. nóvember 2021.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?