Matvælastofnun barst ábending um ólöglegt fiskeldi á Suðurlandi.
Við eftirgrennslan starfsmanna stofnunarinnar kom í ljós að fiskeldi væri viðhaft í húsnæði á Suðurlandi án rekstrar- og starfsleyfa. Við nánari eftirgrennslan reyndist það vera veiðifélag sem elur villt seiði í þeim tilgangi að sleppa þeim í veiðiá í vor.
Húsnæðið þar sem starfsemin er stunduð uppfyllir ekki skilyrði laga og reglugerða um fiskeldi auk þess sem vörnum gegn stroki er ábótavant.
Matvælastofnun hefur málið til rannsóknar og mun upplýsa um málið að rannsókn lokinni.
Umræða