Rannsókn á bruna í Seljaskóla aðfaranótt sunnudagsins 12 maí sl. er langt komin og þrír piltar hafa játað aðild að íkveikju sem leiddi til eldsvoða í þaki skólans. Piltarnir eru undir sjálfræðisaldri og einn þeirra undir sakhæfisaldri.
Málið hefur verið unnið í samráði við félagsyfirvöld og heldur rannsókn málsins áfram. Ekki er hægt að gefa frekari upplýsingar á þessu stigi.
Umræða