• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 18. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Kæri dómsmálaráðherra! Hér duga engin vettlingatök

Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra skrifar

Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

Aðsend grein: Veistu hvað landmærin kosta Kristrún?

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. maí 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Kæra Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra! Getur það verið rétt að opnu íslensku landamærin kosti þjóðina eitt hundrað milljarða króna á ári? Segi og skrifa eitt hundrað milljarða. Þegar Ragnar Árnason, hagfræðingur og prófessor, setur þessa tölu fram í nýlegu útvarpsviðtali á Útvarpi Sögu, hlýtur þú sem ábyrgur forsætisráðherra að setja færustu menn þína til verka, láta þá fara yfir dæmið og annað hvort afsanna eða staðfesta kenninguna. Þessi óheyrilegi kostnaður byrjaði vissulega á vakt fyrrverandi ríkisstjórnar en það ert þú sem getur – og verður – að leiðrétta kúrsinn tafarlaust.

Þessi hlægilegu opnu landamæri Íslands í gegnum Schengen virðast, þegar allt er reiknað, nánast eins og botnlaus tunna. Öll eyríki – Færeyjar, Grænland, Írland og Bretland – fúlsuðu við Schengen og standa vaktina sjálf, vaktina við flugvelli sína og strandir. Við færðum hins vegar landamæri okkar í allar áttir og allir sem komast inn á Schengen komast hingað án þess að sýna vegabréf eða segja nafn sitt. Glæpagengin koma eins og frjálsir menn, rupla og ræna og hverfa síðan á braut með fenginn.

Ragnar bendir á margvíslegan óbeinan kostnað vegna hælisleitenda og innflytjenda, eins og aukið álag á menntakerfi, heilbrigðisþjónustu og félagslega þjónustu. Ragnar segir þennan óbeina kostnað vandlega falinn í fjárlögum og opinberum skýrslum. Lýðræðislegar grundvallarreglur um upplýsingagjöf og ábyrgð séu þannig fótum troðnar.

Um áhrifin og kostnað vegna aukinnar glæpatíðni, svo ekki sé minnst á alvarleika glæpanna og yfirfullu fangelsin, lætur Ragnar ósagt. Væntanlega telur hann heldur ekki með langtímakostnað samfélagsins af því að grunn- og framhaldsskólakerfið ráði engan veginn við að mennta með viðunandi hætti nemendur sína þegar kenna þarf hverjum bekk jafnvel á fjölmörgum tungumálum í ólíkum menningarheimum.

Eitt hundrað milljarðar á ári – Guð hjálpi oss.

Þú veist það mæta vel, Kristrún, að eitt hundrað milljarðar króna á ári eru miklir peningar. Eins og að byggja eitt háskólasjúkrahús á hverju ári. Þetta eru t.d. um 7% af öllum tekjum íslensku fjárlaganna.

Fyrir helming þessarar upphæðar gætir þú sem oddviti jafnaðarmanna nánast lagfært öll vandræði sem snúa hér á landi að öldruðum, sjúkum og fátækum. Það yrði ekki ónýtur minnisvarði fyrir þig, Samfylkinguna og valkyrjurnar.

Þú breyttir og bjargaðir þínum flokki í síðustu kosningabaráttu þegar þú talaðir fyrir skynsamlegri stefnu Mette Frederiksen, flokkssystur þinnar og formanns danska jafnaðarmannaflokksins, í málefnum innflytjenda og hælisleitenda. Nú eruð þið stallsysturnar báðar forsætisráðherrar í ríkisstjórn þjóða ykkar. Vonandi eruð þið í góðu talsambandi. Íslendingar vilja að við stöndum að þessum málum eins og Danir.

Svo frétti ég af þér á nýlegum fundi á „skagfirska efnahagssvæðinu“ á dögunum þar sem þér var hrósað, meira að segja af pólitískum andstæðingi þínum, fyrir að vera „afruglari“ ríkisstjórnarinnar sem myndi stýra henni frá allri glópsku. Þess vegna skora ég á þig að taka vandræðin á hinum opnu landamærum í þínar hendur. Til vara bið ég þig þess lengstra orða að rýna og reikna dæmið hans Ragnars Árnasonar. Verði útkoman svipuð ber þér beinlínis skylda til þess að grípa í taumana.

Nú hafa þau tíðindi gerst að dómsmálaráðherra hefur kastað Úlfari Lúðvíkssyni lögreglustjóra út eins og hundi á hnakkadrambinu. Öllum virtist að Úlfar stæði vakt sína af prýði, vildi stöðva glæpagengi og fíkniefnahópa og hafa röð og reglu á landamærunum. En svona er honum þökkuð vaktin við útidyrnar á Íslandi.

Umræða
Share9Tweet6
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun vegna veðurs

    Viðvörun vegna veðurs

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • ESB neyðir Svíþjóð til að loka vatnsorkuverum

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Lögreglan leitar manns

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hring­veg­ur­inn lok­að­ur vegna árekst­urs

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
  • Lýsa yfir stuðningi við vísitölutengingu lífeyris

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?