50 mál voru bókuð hjá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu frá því kl.17 í gær til klukkan fimm í morgun, hér er stiklað á því helsta.
Starfsfólk í matvöruverslun í hverfi 108 óskaði eftir aðstoð lögreglu um klukkan hálf sjö í gærkvöld vegna hóps fólks, líklega mótmælenda, sem voru með læti og gáfu frá sér ýmis dýrahljóð. Ekki kom til afskipta lögreglu þar sem fólkið yfirgaf verslunina fljótlega.
Lögreglumenn veittu bifreið athygli sem ekið var gegn rauðu ljósi í hverfi 105 skömmu síðar. Í ljós kom að ökumaður var undir áhrifum áfengis og var hann látinn laus að lokinni sýnatöku. Lögreglumenn stöðvuðu svo ökumann í hverfi 104 grunaðan um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna, sá var einnig látinn laus að lokinni sýnatöku.
Nokkrar tilkynningar / kvartanir vegna ölvaðs fólks í miðbænum. Fólkið var ýmist vakið, vísað frá eða ekið heim til sín.
Í Breiðholti var kvartað yfir áreiti og ógnun frá betlara sem brást illa við ef hann var hunsaður. Manninum vísað í burtu af lögreglu. Þá var tilkynnt um hugsanlegan hatursglæp í hverfi 111. Veist var utandyra að þremur múslimskum konum. Málið er í rannsókn.
18:46 Tilkynnt um rúðubrot í Árbæjarskóla (hverfi 110) og klukkan 19:47 var tilkynnt um ofurölvi og ósjálfbjarga mann utandyra í íbúðarhverfi (112). Maðurinn vistaður í fangageymslu þar til ástand lagast. Laust fyrir miðnætti var svo tilkynnt um eld í ruslagámi við Rimaskóla. Slökkviliðið slökkti eldinn skömmu síðar.