• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 25. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Draga á úr notkun plasts

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. ágúst 2018
in Óflokkað
A A
0

Draga á úr notkun plasts

Í anda almennrar stefnu umhverfis- og auðlindaráðherra um úrgagnsforvarnir, Saman gegn sóun, stjórnarsáttmála ríkistjórnarinnar og áætlun umhverfisráðherra Norðurlandanna um að draga úr umhverfisáhrifum plasts var samráðsvettvangur um aðgerðaáætlun í plastmálefnum skipaður í nýliðnum júlímánuði.
Hrönn Jörundsdóttir, sviðsstjóri mæliþjónustu og rannsóknainnviða hjá Matís var skipuð eftir tilnefningu Matís í samráðsvettvanginn ásamt tilnefndum fulltrúum fjölmargra hagaðila. Hlutverk vettvangsins er að koma með tillögur um hvernig draga megi úr notkun plasts, hvernig megi bæta endurvinnslu þess og hvernig takast eigi á við plastmengun í hafi.

Samráðsvettvangurinn á einnig að leggja fram tillögur um hverskonar rannsóknir og hvaða vöktun þurfi að ráðast í, varðandi plast og notkun þess, ásamt því að leggja fram tillögur varðandi stjórnvaldsaðgerðir sem gætu orðið æskilegar.
Aukinheldur er samráðsvettvangnum ætlað að tæpa á því hvernig megi stuðla að nýsköpun sem leitt getur til minni plastnotkunar, s.s. með þróun á vörum sem gætu komið í stað fyrir þekktar plast vörur dagsins í dag.
Í þessu samhengi er rétt að geta þess að Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur óskað eftir umsögnum um tillögu að viðauka við hina almennu stefnu um úrgangsforvarnir, Saman gegn sóun.  Viðaukinn felur í sér m.a. mælanleg árleg markmið um hámarks magn plastumbúða á íbúa, fjölda burðarplastpoka á íbúa, fjölda drykkjarvöru umbúða á íbúa og úrgangshlutfall við fisk og kjötvinnslu.
Hrönn er með doktorsgráðu í umhverfisefnafræði og hefur unnið að og stýrt rannsóknum á óæskilegum efnum í umhverfi og matvælum. Hrönn stýrir m.a. tilvísunarrannsóknarstofu Matís og er sérfræðingur í áhættumati varðandi efnamengun í matvælum og mun Hrönn leggja til sína sérfræðiþekkingu í umhverfismálum og rannsóknum á plasti í umhverfi ásamt áhættumati inn í vinnu samráðsvettvangsins sem áætlað er að ljúki störfum fyrir 1. nóvember 2018

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Sólveig Anna flengdi Hallgrím Helgason á beran bossann“

    ,,Sólveig Anna flengdi Hallgrím Helgason á beran bossann“

    77 deilingar
    Share 31 Tweet 19
  • Heiða Björg í leynihópi – „rústum þessum gaurum“

    75 deilingar
    Share 30 Tweet 19
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Fýlustjórnun, þagnarbindindi og hunsun eru gereyðingarvop

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Nýtt flugfélag í Keflavík

    129 deilingar
    Share 52 Tweet 32
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?