Gjaldtaka á hleðslustöðvum verður tekin upp frá og með 17. ágúst 2023 í bílahúsum Reykjavíkurborgar.
Reykjavíkurborg og Ísorka hafa gert með sér samning um hleðslustöðvarnar og mun Ísorka þjónusta þær og sjá um viðhald. Um er að ræða hleðslustöðvar í bílahúsum í Ráðhúsi, Stjörnuporti,Traðarkoti, Vitatorgi og Vesturgötu 7.
Gjaldið verður sem hér segir
Frá klukkan 8.-18
- 24 kr. KWst.
- 3 kr. mínútan
- Ekkert tímagjald fyrstu þrjár klukkustundirnar.
Frá klukkan 18. til 8.
- 24 kr.kWst.
- Ekkert tímagjald.
Gjaldtakan er sett á til að bregðast við mikilli eftirspurn og til að gæta jafnræðis en var áður ókeypis til kynningar og til að hjálpa til með orkuskiptin og til að hvetja til notkunar á bílahúsunum
Umræða