• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Olíumengun frá togara reyndist vera sprungið hvalshræ

Tilkynning frá Landhelgisgæslunni:

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. september 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Nýverið barst Landhelgisgæslunni gervitunglamynd frá Siglingaöryggisstofnun Evrópu, EMSA, sem gaf til kynna að olía væri að koma frá togaranum Beiti TFES sem var að veiðum djúpt austur af landinu. Landhelgisgæslan fær gervitunglamyndir reglulega sendar til að greina mengun og skipaumferð í efnahagslögsögunni.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafði samband við áhöfn Beitis sem kannaðist ekki við að olíu hafi verið dælt í sjó og hafði engar skýringar á hvers vegna kerfin sýndu að mengun væri að koma frá skipinu.

Það var svo ekki fyrr en togarinn Vilhelm Þorsteinsson kom að Beiti sem uppgötvaðist að Beitir var með sprungið hvalshræ sem sat fast á perustefni skipsins. Enginn um borð hafði hugmynd um veru hvalsins á perunni en úr hræinu lak lýsi sem skyldi eftir sig brák.

Þar með var ráðgátan leyst og laumufarþeginn á perunni var því eftir allt saman ástæða þess að viðvaranir bárust Landhelgisgæslunni. Þetta óvenjulega mál sýnir að fjareftirlit sem þetta er langt á veg komið og er sérlega mikilvægt til að hægt sé að halda uppi virku eftirliti í efnahagslögsögu Íslands.

Ljósmynd: Birkir Hreinsson

Skýring með samsettu myndinni: Gervitunglamynd af rákinni auk vinnumyndar sem Siglingaöryggisstofnun Evrópu vinnur út frá henni og sendir Landhelgisgæslunni. Rákin endar þegar hvalurinn hefur fallið af perustefninu.

Umræða
Share14Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Stakk þrjá með hnífi í borginni

    Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    78 deilingar
    Share 31 Tweet 20
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Skipulögð glæpastarfsemi – Fimm í gæsluvarðhaldi

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Auglýsingaherferð SFS (LÍÚ) hefur engu skilað – Hundruðir milljóna í vaskinn

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?