![](https://patch.com/img/cdn20/users/22941961/20191015/125029/styles/raw/public/processed_images/72266052_3019388371423920_8694838755887939584_n.jpg)
Sautján ára gamall bandarískur drengur lést í bílslysinu sem varð á Snæfellsnesi á laugardaginn. Drengurinn var á ferðalagi ásamt foreldrum sínum og tveimur systrum þegar bifreið þeirra fór út af veginum, fór nokkrar veltur og endaði á hliðinni. Slysið varð í grennd við bæinn Gröf við Kleifá á sunnanverðu Snæfellsnesi. Þetta kemur fram á vef Rúv í dag.
Í frétt á bandaríska vefmiðlinum Patch kemur fram að fjölskyldan sé frá bænum New Hyde Park í New York ríki. Haft er eftir aðstandendum fjölskyldunnar að hinn sautján ára gamli Zachary Zabatta hafi látist í slysinu, og að systir hans, Sophia, hafi slasast alvarlega. Fjölskyldan sé enn á sjúkrahúsi og óljóst sé hvenær hún geti farið heim. Hafin er söfnun fyrir fjölskylduna, og hafa þegar safnast um 52.000 dollarar, að því er fram kemur í fréttinni.