Fræðakaffi | Nokkur orð um konur, buxur og óhlýðni
Borgarbókasafnið | Menningarhús Spönginni
Mánudaginn 18. október kl. 17:15-18:00
Hvaða kvenmannsbuxur áttu þátt í að leysa eitt frægasta sakamál 19.aldar?
Hversdagslegir hlutir sem við sjáum daglega og þykja svo sjálfsagðir að við veltum þeim sjaldnast fyrir okkur eiga sér oft og tíðum heillandi og flókna sögu, sem teygir anga sína víða. Buxnasaga Íslands er mestmegnis órannsakað svið og á fræðakaffinu rekur Hafdís Erla Hafsteinsdóttir sagnfræðingur nokkur dæmi um hvernig saga þessa hversdagslega klæðnaðar ber skýr vitni um gildi og viðmið samfélagsins í nútíð og fortíð. Að klæðast buxum á röngum stað, á röngum tíma og í vitlausu húsi getur oft haft flóknar afleiðingar!
Hafdís Erla Hafsteinsdóttir er með MA-próf í kvenna- og kynjasögu frá háskólanum í Vínarborg. Um þessar mundir leggur hún stund á doktorsnám í sagnfræði við Háskóla Íslands.
Öll velkomin!
Viðburðurinn á heimasíðu
Viðburðurinn á facebook