• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 4. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Litlu jólahúsin í Jólaþorpinu í Hafnarfirði fyllast af lífi, vörum og varningi um helgina

Jólaandinn svífur yfir jólabænum Hafnarfirði alla aðventuna  

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. nóvember 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Nýjungar í bland við það sem alltaf hefur slegið í gegn

Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opnað í tuttugasta sinn föstudaginn 18. nóvember kl. 17 og verður opið allar helgar til jóla auk opnunar á Þorláksmessu. Ljósin verða tendruð á jólatrénu á miðju Thorsplani kl. 18:30 og fagurlega skreyttu jólahúsin í Jólaþorpinu sem orðin eru landsþekktur söluvettvangur verða opin til . Áhersla er lögð á ljósadýrð og skreytingar í jólabænum Hafnarfirði og andi jólanna hefur verið færður yfir á miðbæ Hafnarfjarðar í heild sinni.

Jólaandinn svífur yfir jólabænum Hafnarfirði alla aðventuna  

Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opnað í tuttugasta sinn föstudaginn 18. nóvember kl. 17 og verður opið allar helgar til jóla auk opnunar á Þorláksmessu. Ljósin verða tendruð á jólatrénu á miðju Thorsplani kl. 18:30 þegar Lúðrasveit Hafnarfjarðar og Karlakórinn Þrestir hafa flutt nokkur lög en jólatréð er sem fyrr gjöf frá Cuxhaven, vinabæ Hafnarfjarðar í Þýskalandi. Þegar ljósin hafa verið tendruð mun Hafnfirðingurinn Klara Elías flytja lagið Eyjanótt í jólabúningi og glænýtt jólalag sitt, Desember. Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opið alla föstudaga frá kl. 17-21, laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-18 til jóla og til kl. 22 á Þorláksmessu. Jólasveinarnir koma í heimsókn í Jólaþorpið á laugardögum og Grýla verður á vappi um miðbæinn á sunnudögum.

Nýjungar í bland við það sem hefur alltaf slegið í gegn

Litlu fagurlega skreyttu jólahúsin í Jólaþorpinu í Hafnarfirði eru landsþekktur söluvettvangur fyrir ýmiss konar gjafavöru, handverk og hönnun sem tilvalið er að setja í jólapakkann ásamt gómsætum veitingum til að borða á staðnum og ljúfmeti til að taka með heim á veisluborðið. Kapp er lagt á að bjóða upp á fjölbreytta vöru og varning í jólahúsunum og er óhætt að segja að eftirspurn og aðsókn í jólahúsin í ár hafi slegið öll met. Færri komust að en vildu í jólahúsunum í Jólaþorpinu í ár og ljóst að þessi vinalegi og vinsæli jólamarkaður hefur stimplað sig inn í hug og hjörtu margra og er orðinn hluti af jólahefð, bæði hjá söluaðilum í fallegu jólahúsunum og hjá gestum og gangandi. Í ár er bryddað upp á nýjungum auk þess að bjóða upp á vöru sem hefur slegið í gegn árum saman. Hinn kraftmikli og metnaðarfulli ungi bakari Gulli Arnar, sem rekur samnefnt handverksbakarí í Hafnarfirði, mun til að mynda bjóða sínar kræsingar til sölu allar helgar á aðventunni. Bændurnir á Ytra-Hólmi munu standa vaktina í sínu húsi allar helgarnar líkt og fyrri ár og bjóða til sölu beint frá býli ferskt og reykt lambakjöt, sósur og alls kyns meðlæti eins og kæfur. Þessir og fjöldi annarra spennandi söluaðila verða með jólahús í ár auk þess sem víkingafélagið Rimmugýgur verður með handverksmarkað á Thorsplani fyrstu og aðra aðventuhelgina.

Óvæntar uppákomur og öðruvísi dagskrá á aðventunni

Óvæntar uppákomur verða undirtónn hátíðarhaldanna í Hafnarfirði þetta árið líkt og á síðasta ári. Áhersla er lögð á ljósadýrð og skreytingar í jólabænum Hafnarfirði og andi jólanna hefur verið færður yfir á miðbæ Hafnarfjarðar í heild sinni og auðveldlega hægt að nýta heilu dagana á aðventunni til að upplifa og njóta í Hafnarfirði með heimsókn í Jólaþorpið, í jólaævintýrið í Hellisgerði, verslun og þjónustu um allan bæ, ferð í sundlaugar bæjarins og á söfnin hvar aðgangur er ókeypis og njóta veitinga í þeirri fjölbreyttu flóru veitingahúsa og kaffihúsa sem hafa risið í Hafnarfirði síðustu misserin. Jólabærinn Hafnarfjörður tekur hlýlega á móti Hafnfirðingum og vinum Hafnarfjarðar.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Hval­fjarð­ar­göng lokuð vegna hjól­reiða­manns – Búið er að loka göngunum aftur

    Hvalfjarðargöng eru lokuð

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Sýklalyfjaónæmar bakteríur (MÓSA) greinast í fyrsta sinn á Íslandi  

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Salmonella staðfest

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Við vitum nákvæmlega hvað mun gerast hér á landi“

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?