• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Rósa Björk Brynjólfsdóttir yfirgaf Vinstri græna og er gengin í Samfylkinguna

Ríkisstjórnin hefur aðeins þriggja þingmanna meirihluta

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. desember 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Rósa Björk Brynjólfsdóttir sem sagði sig úr þingflokki Vinstri grænna í september og hefur síðan setið á Alþingi utan flokka er gengin til liðs við þingflokk Samfylkingarinnar. Rósa Björk sat sinn fyrsta þingflokksfund núna klukkan eitt. Hún gekk inn á fundinn við dynjandi lófatak þingflokksins. Rósa Björk studdi ekki ríkisstjórnarsamstarf núverandi stjórnarflokka í nóvember 2017 en það gerði heldur ekki Andrés Ingi Jónsson en hann er enn utan flokka á Alþingi. Fréttin birtist fyrst á Rúv en í kjölfarið sendi  Rósa Björk frá sér yfirlýsingu nú á öðrum tímanum sem er svohljóðandi:

„Í dag gekk ég til liðs við þingflokk Samfylkingarinnar en ég hef verið óháður þingmaður á Alþingi síðastliðna 3 mánuði. Pólitískar áherslur mínar og Samfylkingarinnar eru nátengdar með mikilvægi á aukinn jöfnuð í samfélaginu þar sem allir geta notið sín á eigin forsendum, burtséð frá stétt eða stöðu en líka á frið og sjálfbærni og opið, framsækið og fjölbreytt samfélag með áherslu á virka fjölþætta utanríkisstefnu.

Að undanförnu hefur Samfylkingin að auki lagt mun meiri og skýrari þunga á loftlagsmálin, og umhverfismálin en áður og lagt fram góða áætlun um græna viðspyrnu út úr Covid-19 kreppunni. Það gerir útslagið fyrir mig þegar kemur að því að taka þessa ákvörðun um að ganga í Samfylkinguna og þingflokk hennar. Ég hlakka mjög mikið til að taka þátt í starfi Samfylkingarinnar og að leggja mitt á vogarskálarnar til að bæta íslenskt samfélag“ segir í yfirlýsingunni.

Samfylkingin hefur þar með átta sitjandi þingmenn. Ríkisstjórnin hefur þar með aðeins þriggja þingmanna meirihluta eða aðeins 33 þingmenn á móti 30 í stjórnarandstöðu.

Umræða
Share7Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    181 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?