• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 17. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Strandveiðibátar fara á sjó og harma skemmdarverk stjórnarandstöðunnar

Mynd: Fréttatíminn, Arnarstapi

Strandveiðar án fyrirsjánleika og framtíðar?

Óréttlæti, svikin loforð og skortur á fyrirsjáanleika

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. febrúar 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Strandveiðar hafa í áratugi verið mikilvægur þáttur í íslenskri sjávarútvegshefð. Þær eru ekki aðeins atvinnugrein heldur lífsviðurværi, menning og samfélagsleg undirstaða víða um land. Í dag byggja um 700 fjölskyldur afkomu sína, að hluta eða öllu leyti, á strandveiðum. Þrátt fyrir það búa strandveiðimenn við algert óöryggi og síendurtekið óréttlæti af hálfu stjórnvalda.

Gunnar Jónsson skrifar:
Enginn raunverulegur fyrirsjáanleiki er til staðar. Ár eftir ár eru gefin loforð sem síðan eru brotin. Nú síðast var lofað 48 veiðidögum, en strandveiðibátar voru engu að síður sendir í land áður en þeim dögum var náð. Afleiðingarnar eru alvarlegar: tekjutap, ónýtur undirbúningur, skuldbindingar sem ekki er hægt að standa við og óvissa sem leggst þungt á fjölskyldur og byggðarlög.

Þetta er ekki aðeins spurning um daga á sjó, heldur um virðingu. Þegar stjórnvöld gefa út yfirlýsingar um fjölda veiðidaga, skipuleggja menn líf sitt, fjárfestingar og vinnu í trausti þess að staðið verði við orð. Þegar það traust er rofið verður tjónið ekki aðeins fjárhagslegt, heldur einnig félagslegt og mannlegt.

Sérstaklega er rétt að rifja upp söguna. Ekki alls fyrir löngu þótti eðlilegt að úthluta strandveiðum allt að 94 dögum. Hvað hefur breyst? Fiskistofnar eru ekki í verri stöðu en þá, tæknin er betri og eftirlit meira. Engu að síður hefur svigrúm strandveiða verið skorið niður, á meðan stærri útgerðir njóta stöðugleika og fyrirsjáanleika í sínu rekstrarumhverfi. Hvernig eiga smábátar sem veiða með 16 öngla hver, að vera ógn við fiskistofnana? Við erum að tala um vistvænustu veiðar í heimi.

Ef kvótakerfið væri í raun fiskveiðistjórnunartæki sem vildi hlúa að auðlindinni, yrði togurum sem eyðileggja hafsbotninn og drepa fisk í gríðarlegu magni sem fer ekki einu sinni í veiðarfæri þeirra, fækkað um þriðjung til að byrja með og strandveiðar auknar að sama skapi. Nei, kvótakerfið var gert til að vernda afnotarétt stórútgerðarinnar og hefur lítið með fiskveiðistjórnun að gera.

Strandveiðimenn sitja ekki við sama borð

Það blasir við að strandveiðimenn sitja ekki við sama borð og aðrir í sjávarútvegi. Þeir bera mesta áhættuna, hafa minnstu réttindin og fá sífellt skýr skilaboð um að þeirra framlag sé metið minna. Þetta er sérlega bagalegt í ljósi þess að strandveiðar styðja við dreifða byggð, skapa störf og tryggja að verðmætasköpun haldist víða um land, ekki aðeins á fáum stöðum.

Krafan er ekki óhófleg. Strandveiðimenn biðja ekki um forréttindi, heldur sanngirni, stöðugleika og að staðið sé við gefin loforð. Fyrirsjáanlegt kerfi, raunhæfur fjöldi veiðidaga og virðing fyrir þeim fjölskyldum sem treysta á þessar veiðar.

Ef stjórnvöld vilja í alvöru standa vörð um byggð í landinu og fjölbreyttan sjávarútveg, þá verða strandveiðar að fá að vera raunverulegur valkostur en ekki tímabundið undanþágukerfi sem hægt er að slíta niður eftir hentugleika.

Spurningin er einföld: Hvers vegna var hægt að úthluta 94 dögum áður, en ekki nú? Þar til því er svarað af heiðarleika og ábyrgð, mun óréttlætið gagnvart strandveiðimönnum halda áfram.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fólk hringir í Neyðarlínuna eftir sjúkrabíl til að losna við bið á Bráðamóttöku

    Hring­veg­ur­inn lok­að­ur vegna árekst­urs

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • ESB neyðir Svíþjóð til að loka vatnsorkuverum

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Ekið á gangandi vegfaranda

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Heimilt að segja upp starfmanni án áminningar

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Tvö embætti forstjóra heilbrigðisstofnanna laus

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?