TF-EIR, ný leiguþyrla Landhelgisgæslunnar, kom til landsins síðdegis í gær. Vélin færir Landhelgisgæsluna fyrr inn í nútímann en ráðgert var en hún er önnur tveggja véla af gerðinni Airbus H225 sem leysa leiguþyrlurnar TF-GNA og TF-SYN af hólmi.
Seinni leiguþyrlan kemur til landsins á næstu vikum en hún ber einkennisstafina TF-GRO. Sigurður Heiðar Wiium, yfirflugstjóri Landhelgisgæslunnar, segir nýju leiguþyrlurnar vera örlítið þyngri, tæknilegri, stærri, langdrægari, hraðfleygari og öflugri en þær þyrlur sem Landhelgisgæslan hefur notað undanfarin ár.
Norðmennirnir Steinar Haugen og Frode Moi flugu með TF-EIR frá Noregi ásamt Sigurjóni Sigurgeirssyni, yfirflugvirkja hjá Landhelgisgæslunni. Meðfylgjandi myndir tók Jón Páll Ásgeirsson, yfirstýrimaður, á Reykjavíkurflugvelli í dag.
Hraðfleygari, öflugri og langdrægari en fyrri þyrlur.
TF-EIR lendir á Reykjavíkurflugvelli í dag.
Vélin er hraðfleygari, öflugri og langdrægari en fyrri þyrlur.
Norðmennirnir Steinar Haugen og Frode Moi flugu með TF-EIR frá Noregi ásamt Sigurjóni Sigurgeirssyni, yfirflugvirkja hjá Landhelgisgæslunni.
Sigurður Heiðar Wiium og Björn Brekkan, flugstjórar, bera saman bækur.