• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 31. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt vegna snjóflóðahættu – Veðurspá

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. mars 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0
Ákveðið hefur verið að rýma nokkur atvinnuhús við Skutulsfjarðarbraut á Ísafirði. Í nótt hefur verið hvasst og skafrenningur til fjalla og spáð er áframhaldandi hvassviðri með snjókomu í dag á norðanverðum Vestfjörðum. Krapi sást í morgun í sjónum í Súgandafirði en ekki ummerki um flóðbylgju.

Það bendir til þess að snjóflóð hafi fallið í sjó og hefur fólk varann á sér á hafnarsvæðinu vegna mögulegrar flóðbylgju ef fleiri flóð féllu. Snjóflóð sást í norðanverðum Dýrafirði í morgun á þekktum stað í Hjarðardal. Snjóflóðavakt Veðurstofunnar fylgist grannt með þessum aðstæðum í samráði við almannavarnir.

Veður – Vestfirðir
Norðaustan stórhríð (Appelsínugult ástand). 16 mar. kl. 19:00 – 17 mar. kl. 20:00
Norðaustan stormur eða rok, 20-25 m/s, með talsverðri snjókomu. Búast má við miklum skafrenningi með lélegu skyggni og slæmum akstursskilyrðum. Ekkert ferðaveður.

Hugleiðingar veðurfræðings
Áframhaldandi norðaustan stormur og hríð á norðvestanverðu landinu í dag, og við bætist hríðarveður á norður og norðausturlandi þegar líður á daginn. Einnig er útlit fyrir talsverða úrkomu syðst á landinu og með suðausturströndinni. Það er því full ástæða til að skoða vel færð og veður áður en lagt er af stað í ferðalög, þó komið sé fram yfir miðjan mars. Það dregur smám saman úr vindi og ofankomu á morgun, og verður víða hæg breytileg átt og stökku él annað kvöld, en þá herðir einnig á frosti.
Útlit er fyrir nokkuð rólegt veður á fimmtudag en á föstudag gæti dregið til tíðina með lægð sem ber með sér hlýindi og möguega rigningu á láglendi sunnan og vestanlands.
Spá gerð: 17.03.2020 06:10. Gildir til: 18.03.2020 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Norðaustan 13-23 m/s og snjókoma um landið norðanvert síðdegis, hvassast á Vestfjörðum. Mun hægari vindur sunnantil og stöku él. Víða vægt frost.
Norðan 8-13 á morgun og dálítil él, en austlægari og snjókoma sunnanlands. Lægir annað kvöld, styttir upp að mestu og herðir á frosti.
Spá gerð: 17.03.2020 10:56. Gildir til: 19.03.2020 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Suðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Víða léttskýjað, en stöku él á Vestfjörðum, við Breiðafjörð og einnig við suðurströndina um kvöldið. Frost 1 til 10 stig.
Á föstudag:
Gengur í sunnan 13-20 með snjókomu eða slyddu sunnan- og vestanlands og síðar rigningu við ströndina. Þurrt um landið norðaustanvert. Hlýnar í veðri, hiti 0 til 4 stig eftir hádegi. Hægari suðvestanátt vestanlands um kvöldið með éljum og kólnar aftur.
Á laugardag:
Suðvestan 8-15 og él. Snjókoma eða slydda austanlands framan af degi, en léttir til þar síðdegis. Víða vægt frost.
Á sunnudag:
Sunnan stormur og snjókoma eða slydda, en síðar talsverð rigning. Úrkomulítið norðaustantil á landinu. Hlýnar í veðri, hiti 3 til 8 stig seinnipartinn.
Á mánudag:
Útlit fyrir hvassa suðvestanátt með éljum eða slydduéljum, en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Hiti nálægt frostmarki.
Spá gerð: 17.03.2020 08:58. Gildir til: 24.03.2020 12:00.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Alþingismanni hótað

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    52 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    54 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?