• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Þrír nýir skrifstofustjórar í félagsmálaráðuneytinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. apríl 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0
Frá vinstri: Erna Kristín Blöndal, Gunnhildur Gunnarsdóttir og Bjarnheiður Gautadóttir
.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur í samræmi við nýtt skipurit félagsmálaráðuneytisins skipað þrjá nýja skrifstofustjóra til starfa í ráðuneytinu: Ernu Kristínu Blöndal yfir skrifstofu barna- og fjölskyldumála, Gunnhildi Gunnarsdóttur yfir skrifstofu húsnæðis- og lífeyrismála og Bjarnheiði Gautadóttur yfir skrifstofu vinnumarkaðar og starfsendurhæfingar. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við mat sérstakrar hæfnisnefndar sem skipuð var til að meta hæfi umsækjenda.

Erna Kristín Blöndal nýr skrifstofustjóri barna- og fjölskyldumála tekur við embætti 1. maí næstkomandi. Hún er með BA- og meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og stundar doktorsnám í lögfræði á sviði mannréttindamála við sama skóla. Erna Kristín hefur víðtæka reynslu af opinberri stjórnsýslu og stjórnunarstörfum. Hún starfaði sem lögfræðingur og verkefnastjóri hjá innanríkisráðuneytinu (nú dómsmálaráðuneytinu) frá 2009 – 2016. Frá 2014 var hún sérfræðingur þverpólitískrar þingmannanefndar um endurskoðun útlendingalaga og framkvæmdastjóri norrænnar stofnunar um fólksflutninga frá 2016-2018.
Síðastliðið ár hefur hún starfað sem verkefnastjóri hjá félagsmálaráðuneytinu og leitt vinnu sem lýtur að endurskoðun barnaverndarlaga og innleiðingu á snemmtækri íhlutun.Gunnhildur Gunnarsdóttir nýr skrifstofustjóri húsnæðis- og lífeyrismála tekur við embætti 1. júní næstkomandi. Hún er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands frá árinu 1992 og hlaut réttindi til að starfa sem héraðsdómslögmaður árið 1995. Gunnhildur hefur mikla reynslu af stjórnun og starfsmannahaldi ásamt víðtækri þekkingu á sviði opinberrar stjórnsýslu. Hún gengdi stjórnarstörfum hjá Íbúðalánasjóði á árum 1999 – 2016 og var lengst af framkvæmdastjóri lögfræðisviðs.
Gunnhildur hefur að undanförnu gengt starfi lögfræðings hjá Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar.Bjarnheiður Gautadóttir hefur frá janúar 2019 verið staðgengill setts skrifstofustjóra á skrifstofu lífskjara og vinnumála og verið settur skrifstofustjóri á skrifstofu vinnumarkaðar og starfsendurhæfingar frá febrúar 2019. Hún verður formlega sett í embætti 1. maí næstkomandi. Bjarnheiður er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands frá árinu 2006.
Hún hefur starfað sem sérfræðingur á sviði vinnumarkaðsmála í félagsmálaráðuneytinu (áður velferðarráðuneytið/félags- og tryggingamálaráðuneytið) frá 2006. Bjarnheiður hefur meðal annars haft umsjón með innleiðingu tilskipana frá Evrópusambandinu og leitt nefndir og vinnuhópa í tengslum við gerð lagafrumvarpa og reglugerða í samvinnu við hagsmunaaðila. Eins tekið þátt í starfi norrænnar nefndar á sviði vinnuréttar.
Skipað er í embætti skrifstofustjóra til fimm ára í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?