Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur í samræmi við nýtt skipurit félagsmálaráðuneytisins skipað þrjá nýja skrifstofustjóra til starfa í ráðuneytinu: Ernu Kristínu Blöndal yfir skrifstofu barna- og fjölskyldumála, Gunnhildi Gunnarsdóttur yfir skrifstofu húsnæðis- og lífeyrismála og Bjarnheiði Gautadóttur yfir skrifstofu vinnumarkaðar og starfsendurhæfingar. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við mat sérstakrar hæfnisnefndar sem skipuð var til að meta hæfi umsækjenda.
Síðastliðið ár hefur hún starfað sem verkefnastjóri hjá félagsmálaráðuneytinu og leitt vinnu sem lýtur að endurskoðun barnaverndarlaga og innleiðingu á snemmtækri íhlutun.Gunnhildur Gunnarsdóttir nýr skrifstofustjóri húsnæðis- og lífeyrismála tekur við embætti 1. júní næstkomandi. Hún er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands frá árinu 1992 og hlaut réttindi til að starfa sem héraðsdómslögmaður árið 1995. Gunnhildur hefur mikla reynslu af stjórnun og starfsmannahaldi ásamt víðtækri þekkingu á sviði opinberrar stjórnsýslu. Hún gengdi stjórnarstörfum hjá Íbúðalánasjóði á árum 1999 – 2016 og var lengst af framkvæmdastjóri lögfræðisviðs.
Gunnhildur hefur að undanförnu gengt starfi lögfræðings hjá Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar.Bjarnheiður Gautadóttir hefur frá janúar 2019 verið staðgengill setts skrifstofustjóra á skrifstofu lífskjara og vinnumála og verið settur skrifstofustjóri á skrifstofu vinnumarkaðar og starfsendurhæfingar frá febrúar 2019. Hún verður formlega sett í embætti 1. maí næstkomandi. Bjarnheiður er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands frá árinu 2006.
Hún hefur starfað sem sérfræðingur á sviði vinnumarkaðsmála í félagsmálaráðuneytinu (áður velferðarráðuneytið/félags- og tryggingamálaráðuneytið) frá 2006. Bjarnheiður hefur meðal annars haft umsjón með innleiðingu tilskipana frá Evrópusambandinu og leitt nefndir og vinnuhópa í tengslum við gerð lagafrumvarpa og reglugerða í samvinnu við hagsmunaaðila. Eins tekið þátt í starfi norrænnar nefndar á sviði vinnuréttar.
Skipað er í embætti skrifstofustjóra til fimm ára í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Umræða