Auðunn Kristinsson, verkefnastjóri á aðgerðasviði
Fjórða sinn sem efnt er til ráðstefnunnar hér á landi
Landhelgisgæslan, Samtök útgerða skemmtiferðaskipa á norðurslóðum (AECO) og leitar og björgunarmiðstöðin í Norður-Noregi, efndu til ráðstefnu og viðbragðsæfingar í Iðnó þar sem björgunarmál tengd siglingum skemmtiferðaskipa á norðurslóðum var til umfjöllunar. Þetta er í fjórða sinn sem viðburðurinn er haldinn hér á landi.
Þórdís R. Gylfadóttir, dómsmálaráðherra, setti ráðstefnuna á þriðjudagsmorgun og bauð gesti velkomna. Flutt voru ýmis erindi þar sem þátttakendum gafst kostur á að fræðast um atvik sem hent hafa á undanförnum árum, heyra hvernig úr þeim var leyst og bera saman bækur sínar.
Landhelgisgæslan hefur unnið ötullega að undirbúningi þess ef bregðast þurfi við atviki þar sem skemmtiferðaskip lendir í vanda. Í síðustu viku tók stofnunin þátt í Polaris 2019, umfangsmikilli æfingu, þar sem átta ríki unnu saman að fjöldabjörgun úr farþegaskipi.
Á miðvikudeginum fór fram svonefnd skrifborðsæfing (e. table top exercise) og hana sóttu um sjötíu fulltrúar björgunaraðila, útgerða og annarra sem starfa á norðurslóðum. Æfingin gekk afar vel en þýðingarmikið er að auka þekkingu beggja aðila til að tryggja að viðbrögð verði eins fumlaus og kostur er ef á reynir.