• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 4. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Spennandi að veiða í Kleifarvatni með bjarmann af gosinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. apríl 2021
in Afþreying, Fréttir, Innlent, Stangveiði, Veiði
A A
0

 

Í fyrradag var opnað fyrir veiði í Kleifarvatni, en það opnar 15. apríl fyrir veiði. Það er klárlega spennandi að veiða í Kleifarvatni með bjarmann af eldgosinu í bakgrunni!  Það verður spennandi að sjá hvernig sumarið verður í Kleifarvatni en þar veiðast alltaf nokkrir fallegir urriðar á hverju ári. Bleikjustofninn í vatninu er flottur og margir veiðimenn sem hafa komist upp á lag með að ná bleikjunni þar. Stundur þarf að veiða mjög djúpt.

Þann 19. apríl verður opnað fyrir veiði í Meðalfellsvatni en það gefur yfirleitt talsvert af sjóbirtingi á vorin. Vatnið er sérlega gott varðandi aðgengi að vatninu og ekki nema um 30 mínútna fjarlægð frá höfuðborginni. Tilvalið fyrir veiðimenn að kíkja þangað á mánudaginn. Við hvetjum veiðimenn samt til að sleppa sjóbirtingum á vorin og svo er auðvitað sleppiskylda á niðurgöngulaxi.

Á þriðjudaginn verður opnað fyrir veiði í Þingvallavatni í þjóðgarðinum. Við minnum á að aðeins má veiða á flugu 20. apríl – 1. júní. Auk þess verður að sleppa öllum veiddum urriðum á þessu tímabili.  Urriðastofninn í vatninu hefur vaxið á hverju ári og það verður spennandi að fylgjast með hvernig urriðaveiðin í þjóðgarðinum fer af stað. Það sem gerir veiðina mest spennandi á urriðatímanum er sú að þjóðgarðurinn geymir gífurlega stóra og öfluga urriða. Þegar þú ferð til veiða borgar til að fara vel yfir veiðibúnaðinn áður því þú vilt ekki lenda í því að undirlínan standi á sér eftir að þú hefur sett í urriða lífs þíns!

Meðalfellsvatn – Mynd: María Gunnarsdóttir

Fimmtudagurinn 22. apríl verður kærkominn. Þá er sumardagurinn fyrsti loksins runninn upp og við fögnum því með því að veiða í Elliðavatni, en vatnið opnar fyrir veiði sumardaginn fyrsta ár hvert. Þeir sem þekkja til segja að stærstu fiskarnir veiðist helst á vorin. Í vatninu er bæði bleikja og urriði. Mest veiðist af urriða í vorveiðinni og í gegnum tíðina höfum við séð marga fallega urriða koma á land við opnun. Það er gott plan í vorveiðinni að egna fyrir urriða með litlum straumflugum.  Ef þú vilt undirbúa þig ráðleggjum við þér að kíkja á bæklinginn hans Geirs Thorsteinssonar sem má finna hér.

Þetta kemur fram á síðunni hjá Veiðikortinu.

Umræða
Share5Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Níu handteknir vegna innflutnings á kókaíni

    Hand­tek­inn í aðgerð sér­sveit­ar og lög­reglu á Sel­fossi

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    77 deilingar
    Share 31 Tweet 19
  • ,,Rétt skrimtir á aumlegum tveimur milljónum á mánuði“

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Alþingismanni hótað

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Reyna að sverta Flokk fólksins

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?