• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Samkeppniseftirlitið óskar eftir upplýsingum og ábendingum um fyrirtæki í sjávarútvegi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. apríl 2023
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Upplýsingasíða fyrir ábendingar opnuð

Samkeppniseftirlitið óskar eftir sjónarmiðum vegna athugunar á stjórnunar- og eignatengslum fyrirtækja í sjávarútvegi – Upplýsingasíða opnuð

Í október síðastliðnum greindi Samkeppniseftirlitið frá ákvörðun um að hefja athugun á stjórnunar- og eignatengslum í íslenskum sjávarútvegi. Niðurstöður athugunarinnar verða settar fram í sérstakri skýrslu, en gert er ráð fyrir að hún liggi fyrir í lok árs 2023.
Vegna athugunarinnar hefur Samkeppniseftirlitið nú opnað upplýsingasíðu á heimasíðu sinni þar sem gerð er grein fyrir athuguninni, undirbúningi og framvindu hennar hingað til, auk þess sem sett er fram áætlun um tilhögun og áfangaskiptingu athugunarinnar héðan í frá (verkefnaáætlun).

Er þessari upplýsingagjöf ætlað að stuðla að gagnsæi athugunarinnar. Jafnframt er hverjum sem áhuga hefur gefinn kostur á að koma sjónarmiðum og upplýsingum á framfæri.

Á þessu stigi vinnunnar er sjávarútvegsfyrirtækjum, sem og öllum öðrum sem þess óska, gefinn kostur á að tjá sig um verkefnaáætlunina, athugunina eða annað það sem viðkomandi vill koma á framfæri við eftirlitið. Óskað er eftir að slíkar athugasemdir berist Samkeppniseftirlitinu á póstfangið samkeppni@samkeppni.is eigi síðar en 5. maí 2023.

Jafnframt er öllum gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum í tilefni af athuguninni, svo sem um stjórnunar- og eignatengsl sjávarútvegsfyrirtækja, innbyrðis eða gagnvart öðrum atvinnugreinum. Slíkum ábendingum er hægt að koma á framfæri í gegnum gátt á heimasíðu eftirlitsins (nafnlaust ef óskað er), eða með tölvupósti á samkeppni@samkeppni.is.

Á upplýsingasíðunni er meðal annars gerð grein fyrir eftirfarandi:

  • Athugunin og að hverju hún beinist.
  • Fyrirtæki og markaðir sem athugunin tekur til.
  • Helstu áfangar athugunarinnar.
  • Undirbúningur, skipun ráðgjafarhóps og tenging við gagnagrunna.
  • Yfirstandandi gagnaöflun gagnvart sjávarútvegsfyrirtækjum.
  • Framhald athugunarinnar – næstu skref.
  • Lagagrundvöllur athugunarinnar.
  • Heimild Samkeppniseftirlitsins til gagnaöflunar.
  • Þýðing hugtaksins „yfirráð“ við greiningu á stjórnunar- og eignatengslum.
  • Þýðing stjórnunar- og eignatengsla á vettvangi stjórnvalda.

Fiskistofa annast framkvæmd laga um stjórnun fiskveiða og sinnir eftirliti samkvæmt þeim. Samstarf stofnananna vegna athugunarinnar er því mikilvægt.

https://gamli.frettatiminn.is/17/04/2023/sjavarutvegssfyrirtaeki-rannsokud-ottast-eftirlitid/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?