• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 20. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Heimir hættir sem þjálfari landsliðsins

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. júlí 2018
in Óflokkað
A A
0

Heimir ekki áfram þjálfari landsliðsins

KSÍ getur nú staðfest að Heimir Hallgrímsson verður ekki áfram þjálfari A landsliðs karla.  Sem kunnugt er urðu aðilar ásáttir um að gefa sér góðan tíma til að meta stöðuna í aðdraganda úrslitakeppni HM 2018, og taka upp þráðinn að móti loknu.  Niðurstaðan er sú að Heimir hættir með liðið. Þetta staðfesti KSÍ á heimasíðu sinni í dag
Guðni Bergsson, formaður KSÍ:  „Heimir var auðvitað okkar fyrsti kostur í starfið, enda hefur hann unnið frábært starf á þessum árum sem hann hefur verið með liðið.  Íslensk knattspyrna hefur aldrei staðið jafn framarlega og aldrei áður notið jafn mikillar athygli hérlendis sem erlendis.  Við bundum miklar vonir við að Heimir yrði áfram, en niðurstaðan er þó sú að Heimir hættir með liðið að eigin ósk og vil ég fyrir hönd KSÍ þakka honum kærlega fyrir samstarfið og óska honum alls hins besta í framtíðinni.  KSÍ mun nú taka næstu skref í ráðningu nýs landsliðsþjálfara“.
Heimir Hallgrímsson, fráfarandi landsliðsþjálfari:
„Eftir 7 góð ár hjá Knattspyrnusambandi Íslands hef ég ákveðið að halda ekki áfram með A-landslið karla.  Ég skil sáttur og þakklátur fyrir að hafa fengið að vera hluti af þessari sterku liðsheild sem þessi hópur hefur fyrst og fremst staðið fyrir.  Hluti af hópi sem hefur rutt leiðina fyrir komandi kynslóðir og gert svo ótal margt í fyrsta skipti í sögunni.  Það eru forréttindi að geta yfirgefið verkefnið á tímapunkti eins og í dag.  Leikmenn á toppi síns ferils og hópurinn með mikla reynslu.  Umgjörð, vinnuumhverfi og verkferlar í föstum skorðum.  Góður árangur hefur tryggt okkur sæti meðal þeirra bestu næstu ár.  Árangurinn og frammistaðan hefur skapað virðingu fyrir íslenskri knattspyrnu.  Þó leikmenn eigi heiðurinn og stærsta þáttinn í velgengninni þá er þáttur starfsfólksins í kringum liðið ómetanlegur.  Verkefnin framundan eru stór og spennandi.  Um leið og ég þakka öllu samstarfsfólki, leikmönnum og stuðningsmönnum fyrir samstarfið, þá óska ég ykkur öllum velgengni næstu árin því ferðalagið er rétt að hefjast.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    146 deilingar
    Share 58 Tweet 37
  • IKEA hætt í viðskiptum við Rapyd

    467 deilingar
    Share 187 Tweet 117
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?