Helstu tíðindi LRH frá tímabilinu 17:00 – 05:00
Stöð 1 Austurbær-Miðbær-Vesturbær-Seltjarnarnes
-Lögreglu bárust margar beiðnir vegna fólks í annarlegu ástandi m.a. í hverfi 105 þar var aðili var að kasta múrsteinum í hús. Er lögregla kom á vettvang hafði aðilinn brotið rúðu með athæfi sínu og málið afgreitt á vettvangi. Tilkynnt um einn ölvaðan til vandræða í hverfi 101 sem var farinn er lögregla kom á vettvang. Þá var óvelkominn aðili hugsanlega að koma sér inn í íbúð en sá átti erindi í umrædda íbúð er lögregla gaf sig á tal við hann. Einnig óskuðu dyraverðir eftir aðstoð lögreglu vegna ofurölvaðs aðila sem var til vandræða á ölhúsi í miðbænum.
-Tilkynnt um ölvaðan aðila vera að áreita listamann í hverfi 101. Þeim ölvaða var vísað á brott.
-Tilkynnt um þjófnað þar sem aðili fór inn á starfsmannasvæði á veitingastað og stal þaðan munum. Málið til rannsóknar. Einnig tilkynnt um þjófnað úr verslun, meintir sakborningar undir lögaldri og málið í viðeigandi ferli. Tilkynnt um þjófnað úr verslunum í hverfi 103 þar sem sami aðilinn átti að hafa stolið munum. Málið til rannsóknar.
-Tilkynnt um innbrot á veitingarstað í hverfi 108. Ekki lág fyrir hverju var stolið er fréttaskeyti var ritað og því ekki vitað hverju var stolið. Málið til rannsóknar.
-Tilkynnt um eignaspjöll á rúðu í heimahúsi og telur lögregla sig vita hver gerandi er. Málið til rannsóknar.
-Lögregla var með umferðareftirlit þar sem fylgst var með of hröðum akstri. Sjö ökumenn voru kærðir og eiga von á sektum.
-Lögregla hafði eftirlit með réttindum dyravarða. Á einu ölhúsi voru tveir án gildra réttinda og rekstraraðila gert að bæta úr því.
-Tilkynnt um yfirstandandi slagsmál í hverfi 105. Lögreglan sinnti.
-Tilkynnt um slagsmál á ölhúsi í hverfi 101. Um var að ræða kýting milli tveggja vina. Ekki þörf á frekari aðgerðum lögreglu.
Stöð 2 Hafnarfjörður-Garðbær-Álftanes
-Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Færður á lögreglustöð í sýnatöku.
-Tilkynnt um margmenni á veitingarstað og flest fólkið undir lögaldri. Lögregla sinnti.
-Tilkynnt um óvelkominn aðila í hverfi 210. Sá farinn er lögregla kom á vettvang.
Stöð 3 Kópavogur og Breiðholt.
-Tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir þar sem aðilar voru að ganga á hurðir og athuga hvort þær voru opnar. Aðilarnir farnir er lögregla kom á vettvang.
-Tilkynnt um eld í hverfi 111. Um var að ræða varðeld í garði og húsræðanda gert að slökkva í eldinum.
-Ekið á kött. Viðeigandi ráðstafanir gerðar.
-Tilkynnt um eld í kofa í hverfi 109. Lögregla fór á vettvang ásamt slökkviliði.
-Árásarþoli óskar eftir aðstoð lögreglu þar sem hann kvaðst hafa verið sleginn en hann komið sér burt. Árásaraðili farinn. Vitað hver meintur árásaraðli er og málið í rannsókn.
-Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Færður á lögreglustöð í sýnatöku.
-Tilkynnt um umferðaróhapp þar sem ekið var á kyrrstæða bifreið. Ökumaður talinn vera undir áhrifum áfengis. Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis, hann vistaður í fangageymslu vegna málsins. Ekki slys á fólki.
-Tilkynnt um umferðaróhapp þar sem ökumaður ók á vegstólpa og ók svo af vettvangi.
-Tilkynnt um hóp manna í bílakjallara í hverfi 200 og vera að ganga á milli bifreiða og kíkja inn í þá. Lögregla sinnti.
Stöð 4 Grafarvogur-Mosfellsbær-Árbær.
-Ökumaður stöðvaður fyrir að aka á 86 km/klst. þar sem hámarkshraði er 60 km/klst. Ökumaður viðurkenndi einnig að vera sviptur ökuréttindum.
-Tilkynnt um slagmál í hverfi 110. Lögregla sinnti.
-Þá bárust tilkynningar vegna samkvæmishávaða víðsvegar um borgina sem lögreglan sinnti.