Hún var heldur betur hissa og undrandi frúin sem kíkti til okkar í Laugardalinn í gær. Meðferðis hafði hún Lottómiða sem maðurinn hennar hafði beðið hana um að koma til okkar og sækja 27 þúsund króna vinninginn sem hann taldi að á honum væri.
En annað kom í ljós; vinningurinn var ekki 27 þúsund heldur 27 milljónir og tæplega 400 þúsund krónum betur. Maðurinn hafði farið með miðann á sölustað til að láta skoða hann en bæði hann og starfsmaðurinn lásu upphæðina svona skakkt. Miðinn var bara settur aftur í veskið og beðið eftir næstu ferð í bæinn. Eigandi þessa miða var á ferðalagi um norðurlandið og keypti þennan gæðamiða í Olís í Varmahlíð.
Báðir vinningshafarnir sem skiptu með sér fjórföldum Lottópotti frá 7. ágúst upp á 54.8 milljónir króna hafa gefið sig fram.
Hinn miðinn var keyptur á N1 á Þingeyri, rétt fyrir lokun. Eigandi hans var að kaupa sér sjeik og „æ láttu mig hafa einn 10 raða með Jóker“. Hann kom aftur í söluskálann daginn eftir – til að kaupa sér sjeik, var spurður hvort hann hefði hugsanlega keypt vinningsmiðann og mikil var gleðin þegar kom í ljós að það var akkúrat málið. Hann sagði alveg ljóst í hvað þessi vinningur færi, hann ætlar að kaupa sér íbúð, og kannski einn sjeik til.
Íslensk getspá óskar þessum stálheppnu vinninghöfum innilega til hamingju með þessa flottu vinninga.