• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Laugardagur, 3. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Börn reykja kannabisvökva með rafrettum

ritstjorn by ritstjorn
17. september 2019
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

 

,,Fíkniefnadjöfullinn spyr ekki um fjölskyldu- eða heimilisaðstæður né í raun um nokkuð annað“
Lögreglan á Suðurnesjum vekur athygli á því að börn á svæðinu voru að reykja kannabis í gegnum rafrettur:

Lögreglan á Suðurnesjum vekur athygli á því að börn á svæðinu voru að reykja kannabis í gegnum rafrettu

,,Hverjir eru það sem eru aðallega að neyta fíkniefna?
Þetta er spurning sem við heyrum reglulega. Svarið við henni er ekki auðvelt en þó má segja að allir geti lent í því að falla fyrir fíkniefnum. Fíkniefnadjöfullinn spyr ekki um fjölskyldu- eða heimilisaðstæður né í raun um nokkuð annað.
Okkur bárust í dag nokkrar flöskur af meintum kannabisvökva fyrir rafrettur eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Þessi rafrettuvökvi var í vörslu barna sem voru byrjuð að fikta við að reykja hann. Þessi börn koma öll frá góðum heimilum þar sem röð og regla er á hlutunum. Þetta eru börn sem voru byrjuð að fikta…og hver veit hvernig farið hefði ef foreldrar hefðu ekki verið vakandi yfir því hvað börnin þeirra voru að gera?
En þessir foreldrar voru búin að vera að fylgjast með því hvað börnin þeirra voru að gera á kvöldin og voru með virkar forvarnir í gangi á heimilinu. Þau náðu að grípa inn í tímalega áður en aðstæður urðu illviðráðanlegar. Að sögn barnanna er mjög mikið af ungu fólki að reykja þennan kannabisblandaða rafrettuvökva í dag.

Við sem foreldrar verðum að fylgjast með og vita hvað börnin okka eru að gera. Aðgengi að fíkniefnum í dag er gríðarlega auðvelt en að sjálfsögðu gerum við lögreglumenn okkar besta við að stemma stigu við þessari vá.

En til að vel takist þá verðum við öll að standa saman. Við þetta má bæta að ekki er að finna kannabislykt af vökvanum sem okkur barst, heldur er lyktin frekar sæt.“ Segir lögreglan á Suðurnesjum.
https://gamli.frettatiminn.is/2019/09/17/300-til-400-manns-deyja-a-dag-ut-af-thessu-lyfi-eins-og-ein-stor-boeing-thota-ad-hrapa-til-jardar-full-af-farthegum/

  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Bjartviðri og allt að 20 stiga hiti

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ný gögn í Madeleine McCann málinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Björguðu sex manns úr vatni

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Mótmæli við Alþingi – ,,Vanhæf ríkisstjórn“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?