- Aðeins tvær sýningar eftir
- Spjall við aðstandendur eftir báðar sýningarnar
- Halldóra Geirharðsdóttir gestur í umræðum
Leikhópurinn Sjáumst, sem stendur að baki leiksýningunni Hið stórfenglega ævintýri um missi, býður upp á leikhússpjall að loknum næstu tveimur sýningum, en þær eru jafnframt síðustu sýningarnar á verkinu. Sýningarnar fara fram miðvikudaginn 19. október og miðvikudaginn 2. nóvember kl. 20:30.
- október munu Gríma Kristjánsdóttir, höfundur og leikkona, Þórður Sigurðarson, höfundur tónlistar, og Halldóra Markúsdóttir, aðstoðarleiksstjóri, svara spurningum og spjalla við áhorfendur.
- nóvember munu Gríma Kristjánsdóttir og Halldóra Geirharðsdóttir sitja fyrir svörum, en Halldóra hefur mikla reynslu af notkun trúðatækninnar í leiklist.
Sýningin hefur notið mikilla vinsælda og nú er um að gera að missa ekki af tækifærinu!
„Ef þú ert að leita þér að sýningu sem er marglaga myndlíking um mannlega þjáningu eða troðfull af dulkóðuðum pólitískum skilaboðum þá er þetta ekki sýningin fyrir þig. En ef þú ert til í einlæga frásögn af missi, mannlegum breyskleika og tilbúinn í heiðarlegt tilfinningalegt ferðalag mæli ég með að þú skellir þér í Tjarnarbíó á hið stórfenglega ævintýri um missi.“
– Eva Halldóra Guðmundsdóttir (RÚV, Víðsjá)
„Sönn, fyndin, hugrökk og falleg sýning sem snerti mig djúpt.“
– Jónheiður Ísleifsdóttir
„Auk þess að róa á djúpið í afhjúpun á eigin upplifunum fer Gríma af fullu hugrekki í ferðalag sem er síður en svo öllum leikurum gefið að fara.“
– Stefán Benedikt Vilhelmsson
Nánar um verkið á heimasíðu Tjarnarbíós