Bjarki Hólmgeir Halldórsson hefur gefið út bókina Saknað í samstarfi við Óðinsauga.
Bókin er um íslensk mannshvörf. Meðal annars er fjallað ítarlega um Geirfinnsmálið í bókinni en einnig um fjölmörg önnur óupplýst mál.
Bókin hefur að geyma 31 ítarlega kafla um mannshvörf á Íslandi og Íslendinga sem horfið hafa erlendis. Einnig er að finna styttri umfjallanir um flest þau mannshvörf sem höfundi er kunnugt um á árunum 1920-2019. ,,Ritun þessa verks hefur tekið á og óhætt er að segja að við hverja eina spurningu sem maður finnur svar við í þessum málflokki, vakna sennilega um tíu aðrar í staðinn.“
Upphaf þess að ráðist var í ritun þessara bókar má rekja til slyss sem höfundur bókarinnar lenti í árið 2017. Varð hann óvinnufær um tíma, en öllu jafna starfar hann sem vinnuvélastjórandi hjá verktakafyrirtækinu Ístak.
Til að hafa ofan af fyrir sér meðan bata væri náð, hóf hann að safna saman upplýsingum um mannshvörf og stofnaði síðuna “Íslensk mannshvörf” á Facebook og vefsíðuna www.mannshvorf.is þar sem fjallað hefur verið um málaflokkinn á eins heiðarlegann hátt og unnt er, en þó reynt að sýna ýtrustu nærgætni. Í kjölfar fjölda áskoranna um að ráðast í gerð bókar, var fátt annað að gera en taka slaginn.
Myndir frá útgáfuhófinu: