• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stuðningur vegna launa fólks sem starfar í Grindavík

Grindavík.is

Stuðningur vegna launa fólks sem starfar í Grindavík

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. nóvember 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum nú í morgun frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, um tímabundinn stuðning vegna launa fólks sem starfar í Grindavík. 

Lögin taka til starfsfólks á almennum vinnumarkaði sem getur ekki mætt til vinnu vegna þess að starfsstöð þess er staðsett í Grindavíkurbæ. Markmið laganna er að vernda afkomu umræddra einstaklinga með því að tryggja laun þeirra upp að ákveðnu hámarki. Markmið laganna er sömuleiðis að viðhalda ráðningarsambandi atvinnurekenda og starfsfólks þannig að sem flest þeirra sem vinna í Grindavík haldi störfum sínum.

Gert er ráð fyrir að ríkið greiði fjárhæð að ákveðnu hámarki sem gangi upp í laun starfsfólks og sjálfstætt starfandi einstaklinga og að stuðningurinn sem ríkið greiðir geti numið allt að 633.000 krónum á mánuði auk framlags í lífeyrissjóð. Þetta er sama hámarksfjárhæð og Ábyrgðasjóður launa greiðir.

Ef einstaklingar sem lögin gilda um verða fyrir því að fá ekki greidd laun, þrátt fyrir ofangreint úrræði, munu þeir sjálfir geta fengið stuðning frá Vinnumálastofnun, enda séu tiltekin skilyrði uppfyllt.

Gert er ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sjái um greiðslurnar og að lögin muni gilda frá og með 11. nóvember sl. og út febrúarmánuð á næsta ári. Framkvæmd varðandi greiðslu stuðnings verður útskýrð nánar á vef Vinnumálastofnunar á næstu dögum.

Fyrir liggur að ríki og Grindavíkurbær munu áfram greiða starfsfólki sínu í Grindavík laun. Lögunum er því einungis ætlað að gilda um stuðning til greiðslu launa vegna starfsfólks á almennum vinnumarkaði.

Ef fyrirtæki sem fengið hafa ofangreindan stuðning ákveða að greiða eigendum sínum út arð fyrir lok febrúar 2025 ber þeim að endurgreiða stuðning ríkisins áður en til arðgreiðslna kemur.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra:

„Grindvíkingar hafa orðið fyrir gríðarlegu áfalli og við erum enn í atburðarásinni miðri. Ég dáist að því hvernig íbúar, stjórnkerfi og fyrirtæki í Grindavík hafa tekist á við hamfarirnar. Það er okkar hinna að standa með Grindvíkingum og styðja fólk og aðstoða með öllum þeim ráðum sem við getum. Við í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu fórum samstundis af stað og afurðin er lagafrumvarp sem dreift verður á Alþingi síðar í dag. Gert er ráð fyrir að lögin gildi út febrúar á næsta ári. Ákvörðun um framhaldið verður síðan tekin þegar við sjáum hvernig málin þróast.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    180 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?