• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 13. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sprenging í netverslun í nóvember

Netverslun í nóvember var 368% hærri en í nóvember í fyrra

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. desember 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Innlend velta íslenskra korta í nóvember nam alls 70,7 milljörðum kr. og jókst um 5,6% á föstu verðlagi. Aukninguna milli ára má rekja til blómlegrar verslunar í mánuðinum en samdráttar gætir í flestri þjónustu vegna veirufaraldursins. Nam velta Íslendinga innanlands í verslunum 46 milljörðum kr. og hefur aldrei verið meiri í einum mánuði.

Velta erlendra greiðslukorta nam rúmum 1,6 millj. kr. í nóvember síðastliðnum. Samanlögð velta íslenskra korta og erlendra var því 72,35 millj. kr. Samanborið við sama tíma í fyrra lækkaði heildarkortaveltan, bæði innlend og erlend, um 9,6% milli ára í nóvember. Þrátt fyrir metmánuð í verslun.

Landsmenn tóku afsláttardögum vel

Auknar vinsældir afsláttardaganna þriggja Dags einhleypra, Svarts föstudags og Stafræns mánudags hafa breytt neysluvenjum til frambúðar og fer sífellt meiri jólaverslun fram í nóvember. Samanborið við sama mánuð í fyrra nam aukning í verslun íslendinga 28,6% í nóvember, þar sem netverslun vóg tæp 17% allrar verslunar í mánuðinum.

Velta í stórmörkuðum og dagvöruverslunum jókst um 26,7% samanborið við fyrra ár og nam 18,2 milljörðum Veltan í mánuðinum sem leið er nánast jafn há og veltan í desember á síðasta ári en hún var 18,3 milljarðar þá.

Mikil veltuaukning var einnig á milli ára í öðrum flokkum verslunar, þar sem mest hlutfallsleg aukning var í sölu á raf- og heimilistækjum eða 71% milli ára.

Innlend kortavelta fataverslana nam 3,9 milljörðum kr. og jókst um 29% milli ára í nóvember, svipaða sögu er að segja af verslunum með heimilisbúnað. Þar nam veltan alls 3,2 milljörðum og jókst um 11% borið saman við fyrra ár.

Netverslun nærri fimmfaldaðist

Netverslun í nóvember var 368% hærri en í nóvember í fyrra. Í fjórum flokkum verslunar skreið netverslun yfir milljarð í fyrsta skiptið. Velta stórmarkaða og dagvöruverslana nam einum milljarði á netinu og álíka mikil velta var á netinu með föt. Raf- og heimilistækjaverslanir veltu 1,6 milljarði í gegn um Íslensk kort og verslanir með heimilisbúnað tæpum 1,3 milljörðum.

Samblanda samkomutakmarkana og áðurnefndu afsláttardaga útskýrir þessa miklu hækkun í veltu netverslunar. Þó óvíst sé að hvaða marki þessi áhrif í átt til meiri netverslunar vari til lengri tíma má ætla að þau verði einhver. Hve stór hluti breytingarinnar er kominn til að vera verður tíminn og veiran að leiða í ljós.

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Látinn eftir stórfellda líkamsárás

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Sigurður Fannar í héraðsdómi – réð dóttur sinni bana

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • SOS frá Landssambandi lögreglumanna – Ekki litið á lögreglumenn sem opinbera starfsmenn!

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Andlegu málin með Gísla Hvanndal: Katrín Lind Hönnudóttir miðill og heilari

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Vestmannaeyjabær stefnir Vinnslustöðinni – Bótakrafa upp á um tvo milljarða króna

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?