Tveir karlar á þrítugsaldri voru í vikunni í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 10. janúar, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á fjölda þjófnaðarmála í umdæminu að undanförnu.
M.a. er um að ræða þjófnaði á farsímum úr búningsklefum íþróttahúsa víða á höfuðborgarsvæðinu. Rannsókn lögreglu er umfangsmikil, en hún telur að um skipulagða þjófnaði sé að ræða.
Umræða