• 442.is
  • Veiðin.is
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
  • Innskráning
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Auglýsingar
Hafa samband
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Ekkert fannst
View All Result
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
AUGLÝSING

Segir að langbest sé að selja Íslandsbanka núna – Brunaútsala í miðjum heimsfaraldri

Telur að nýir eigendur muni leysa upp ferðaþjónustufyrirtæki sem áður voru í skjóli hjá bankanum

Ritstjórn Fréttatímans eftir Ritstjórn Fréttatímans
18. janúar, 2021
0 0
Segir að langbest sé að selja Íslandsbanka núna – Brunaútsala í miðjum heimsfaraldri

Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að núna sé akkúrat langbesti tíminn til að selja Íslandsbanka

 

Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að núna sé akkúrat langbesti tíminn til að selja Íslandsbanka

Ásdís segir að nú sé alveg sérstaklega góður tími til að selja, meðal annars vegna þess að ríkið eigi stóran hlut í íslenska bankakerfinu og það sé ekki æskilegt. Þá undrast hún að einhver skuli hafa áhyggjur af því að sama sagan endurtaki sig, sem að olli síðasta hruni á Íslandi þegar bankarnir voru einkavæddir. Jafnframt undrast hún hræðsluna um það hverjir munu eignast bankann, það sé ekkert til þess að hafa áhyggjur af.

Meira en hundrað milljarðar í frystingu í miðjum heimsfaraldri

Guðrún Johnsen, hagfræðingur og lektor við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn

Guðrún Johnsen, hagfræðingur og lektor við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn, sem mætti Ásdísi í Silfrinu, er því algjörlega ósammála og segir að núna sé versti hugsanlegi tími til að selja bankann á hrakvirði og líkti því við brunaútsölu vegna heimsfaraldursins og frystra lána ferðaþjónustunnar. Það sé alla vega ekki hagstætt fyrir seljandann, þjóðina sem á bankann að selja hann á mestu óvissutímum, þ.e. í miðjum heimsfaraldri, þegar allt efnahagkerfi í veröldinni er lamað.

Gullið tækifæri fyrir áhættusækna braskara

Guðrún Johnsen, hagfræðingur og lektor við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn segir að svona stórt lánasafn sem sé í frystingu laði að sér áhættusækna fjárfesta. „Ef þingið samþykkir þetta, þá er verið að laða að fjárfesta sem eru áhættusæknir. Og þeir hafa áhuga á einhverju öðru heldur en reglulegri bankastarfsemi.” Með öðrum orðum telur hún að nýir eigendur muni leysa upp ferðaþjónustufyrirtæki sem áður voru í skjóli. Þá bendir hún á að eftirlit á Íslandi sé ótraust og hún bíði enn eftir úttekt á kerfinu hér á landi og t.d. hafi skýrsla um krosseignatengsl á Íslandi ekki borist síðan 2001 frá þeirri eftirlitsstofnun sem á að sjá um það lögum samkvæmt.

„Þessi hræðsla um hver verður hugsanlegur eigandi er mjög skrýtin afstaða. Þú ert svolítið föst í fortíðinni,“ segir Ásdís. Guðrún segir á móti að ef hún sé það þá sé það bara „fine”, en undirstrikar að það sé eitt að setja lög og reglur, en annað að fara eftir þeim og hafa með þeim eftirlit.

Deila110TweetDeila
Ritstjórn Fréttatímans

Ritstjórn Fréttatímans

Umræða

Auglýsing

Mest lesið í dag

  • Þakkar lífvörðum sínum fyrir að vera á lífi

    121 deilingar
    Deila 121 Tweet 0
  • Flótti úr Sjálfstæðisflokknum – Einokun og afturhald

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Íslendingar fái senda peninga heim í formi hlutabréfa

    131 deilingar
    Deila 131 Tweet 0
  • Óvinsælustu ráðherrar Íslands – Spillingarmál og tortryggni

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Manndráp – áframhaldandi gæsluvarðhald til 19. mars

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
Fréttatíminn.is

Fréttatíminn er óháður miðill

Fréttatíminn © 2020

Ekkert fannst
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is

Fréttatíminn © 2020

Velkomin/n!

Skráðu þig inn hér fyrir neðan

Gleymt lykilorð?

Búa til aðgang!

Fill the forms bellow to register

Það þarf að fylla inn alla reiti. Innskráning

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Innskráning
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?