• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 13. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hafnarfjörður tekur á móti allt að 450 flóttamönnum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. janúar 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs, undirrituðu í dag samning um samræmda móttöku flóttafólks í Hafnarfirði og áframhaldandi samstarf í málaflokknum. Samkvæmt samningnum mun Hafnarfjarðarbær taka á móti allt að 450 flóttamönnum.

Markmiðið með samræmdri móttöku flóttafólks er að tryggja flóttafólki samfellda og jafna þjónustu óháð því hvaðan það kemur og í hvaða sveitarfélagi það sest að. Lögð er áhersla á nauðsynlega aðstoð til að vinna úr áföllum og að fólk fái tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu, svo sem með atvinnu, samfélagsfræðslu og námi, þ.m.t. íslenskunámi. Fagleg móttaka kallar á virkt samtal og samvinnu allra hlutaðeigandi aðila. Hafnarfjarðarbær er eitt þeirra sveitarfélaga sem samþykkti þátttöku í tilraunaverkefni um samræmda móttöku árið 2020 og býr að dýrmætri reynslu og þekkingu í málaflokki flóttafólks.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra:

„Það er gleðiefni að Hafnarfjarðarbær hafi undirritað nýjan samning um samræmda móttöku flóttafólks, enda er mikilvæg og kærkomin þekking til staðar í bæjarfélaginu varðandi móttöku flóttafólks. Ég óska Hafnfirðingum einlæglega til hamingju.“

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri:

„Reynslan við móttöku flóttafólks sýnir að þjónustuþörf og stuðningsþörf er mjög mikil fyrstu dagana og vikurnar meðan fólk er að fóta sig á ókunnum slóðum og ákveða hvar það vill festa rætur til framtíðar. Þetta hefur kallað á mikla og sérhæfða þjónustu fagfólks, eflingu innviða og sértæka þjónustu á ýmsum sviðum og því mikilvægt skref að fjármögnun þjónustunnar sé tryggð með þessum samningi.“

Þetta er sjötti samningurinn sem undirritaður er um samræmda móttöku flóttafólks á skömmum tíma. Auk Hafnarfjarðarbæjar hafa Akureyri, Árborg, Hornafjörður, Reykjanesbær og Reykjavíkurborg undirritað samninga við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið.

 
  • Hafnarfjörður tekur á móti allt að 450 flóttamönnum - mynd úr myndasafni númer 1
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Verr farið með Ísland en Namibíu – Kvótakerfið til Mannréttindadómstólsins

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?