• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Samkeppni um hönnun nýs hjúkrunarheimilis í Hornafirði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. febrúar 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili í Hornafirði fyrir 30 íbúa verður auglýst um helgina. Heimilið mun leysa af hólmi hjúkrunarheimilið Skjólgarð þar sem búa 24 einstaklingar, flestir í tvíbýli. Áætlað er að hönnun heimilisins liggi fyrir í lok maí og að það verði fullbyggt og tilbúið til notkunar vorið 2021.
Nýja heimilið verður byggt með tengingu við húsnæði gamla Skjólgarðs, sem byggt var árið 1996. Öll hönnun húsnæðisins verður í samræmi við nútímakröfur og viðmið um skipulag hjúkrunarheimila. Einbýli verða fyrir alla íbúana og áhersla lögð á að allar aðstæður séu sem heimilislegastar.
Framkvæmdasýsla ríkisins mun auglýsa hönnunarsamkeppnina um helgina. Samkeppnislýsing hönnunarinnar verður birt á næstu dögum þar sem meðal annars er fjallað um helstu markmiðin sem eru að;

  • fá fram hugmyndir að vistlegu heimili fyrir einstaklinga sem þurfa á langvarandi umönnunar- og hjúkrunarþjónustu að halda.
  • skapa góð rými til útvistar fyrir heimilismenn og góða aðkomu að lóð.
  • vistarverur almennt og herbergi einstaklinga séu haganlega útfærð og tekið tillit til einstaks umhverfis og útsýnis.
  • tryggð sé góð vinnuaðstaða starfsmanna.
  • horft sé til framtíðar í velferðartækni- og öðrum tæknilegum lausnum er auðveldað geta daglegt líf heimilisfólks og vinnuaðstöðu starfsmanna.
  • ytra og innra fyrirkomulag sé til fyrirmyndar hvað varðar aðgengi og öryggismál.
  • byggingin verði hagkvæm með hliðsjón af framkvæmda- og rekstrarkostnaði byggingarinnar.
  • húsnæðið tryggi  hagkvæmni í daglegum rekstri eins og í starfsmannahaldi. Þar er m.a. átt við að starfsfólk geti haft góða yfirsýn innan eininga og á milli eininga og jafnframt að helstu vegalengdir verði sem stystar.
  • nýbygging endurspegli vandaða byggingarlist er fellur vel að umhverfi sínu.
  • umhverfissjónarmið og vistvæn hönnun verði höfð að leiðarljósi við útfærslu byggingar og lóðar.  Á síðari stigum hönnunar verður horft til vistferilskostnaðar (e. life cycle cost) m.a. við val á byggingarefnum.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?