• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

VR tekur 4.2 milljarða frá Kviku banka verði leiguhækkun ekki afboðuð innan fjögurra daga

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. febrúar 2019
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

,,Við höfum nú þegar gert ráðstafanir um það hvert fjármunir félagsins verða fluttir, komi til þess“

,,VR er frjálst að færa sína sjóði og kostar það félagið ekki neitt. Ef rétt reynist að Kvika banki hefur ekkert með ákvarðanir Gamma/Almenna að gera, sem ég reyndar efast stórlega um, hefur bankinn sama frest til að rifta fyrirhuguðum kaupum á fyrirtæki sem svífst einskis þegar kemur að siðlausum gróðasjónarmiðum gagnvart almenningi.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.

Stjórn VR stendur fast á sínu. Við höfum nú þegar gert ráðstafanir um það hvert fjármunir félagsins verða fluttir, komi til þess, og mun það ekki hafa nokkur áhrif á ávöxtun fjármuna félagsins sé tillit tekið til árangurs bankans síðustu ár.“ Segir Ragnar Þór Ingólfsson.
Kvika er eig­andi fjár­mála­fyr­ir­tæk­is­ins Gamma og Al­menna leigu­fé­lagið er í eigu sjóða Gamma og segir VR í bréfi til Kviku að þess vegna sé tilmælunum beint að stjórn­end­a Kviku banka. VR sættir sig ekki við að Al­menna leigu­fé­lagið hafi hækkað leigu um tugþúsund krón­ur og gefið leigj­end­um fjóra daga til að samþykkja hækk­un­ina.
Krefst VR þess að áformin séu dreg­in til baka, en að öðrum kosti ætli fé­lagið að taka allt sitt fé úr eign­a­stýr­ingu hjá Kviku banka, en um er að ræða 4,2 millj­arða. VR hefur farið  yfir gögn með sam­skipt­um Al­menna leigu­fé­lags­ins við leigj­end­ur þar sem án fyr­ir­vara eða hald­bærra raka sé kraf­ist tugþúsunda hækk­un­ar leigu og leigj­end­um sett­ir þeir afar­kost­ir að samþykkja hækk­un­ina eða missa hús­næðið. Um­hugs­un­ar­frest­ur er gef­inn leigjendum sem eru aðeins fjór­ir dag­ar.
VR seg­ir slíka hækk­un gera vænt­ar hækk­an­ir VR í samn­ingaviðræðum við Sam­tök at­vinnu­lífs­ins að engu. „Það er varla hægt að lýsa þessu með öðrum orðum en sem grimmd, taum­lausri græðgi og mann­vonsku,“ seg­ir í bréfi VR og veitir Kviku banka fjög­urra daga frest til þess að láta leigu­fé­lagið hætta við hækk­un­ina. „Hafi það ekki verið gert inn­an fjögra daga mun VR taka allt sitt fé úr eign­a­stýr­ingu hjá Kviku banka sem er um 4,2 millj­arðar króna.“

Hér er svo bréfið sem að var sent til Kviku:

Í ljósi þess að fjármálafyrirtækið Gamma er í eigu Kviku banka, og stýrir Almenna leigufélaginu, beinum við orðum okkar til stjórnenda Kviku banka.
VR hafa borist gögn með samskiptum Almenna leigufélagsins við nokkra leigjendur sína þar sem enn á ný er án fyrirvara, eða nokkurra haldbærra raka, krafist tugþúsunda hækkunar leigu og leigjendum settir þeir afarkostir að samþykkja hækkunina ellegar vera hent á götuna án húsaskjóls. Umhugsunarfrestur sem leigjendum er gefinn til að samþykkja eða hafna tilboðinu er einungis fjórir dagar. Ljóst er að tugþúsunda hækkun á leigu gerir væntar hækkanir sem VR er nú að semja um við Samtök atvinnulífsins að engu.
Það er varla hægt að lýsa þessu með öðrum orðum en sem grimmd, taumlausri græðgi og mannvonsku.
Stjórn VR sættir sig ekki við þetta. Við kjósum að láta ekki bendla okkur við aðila sem beita slíkum meðulum og höfum tekið þá ákvörðun að veita Kviku banka fjögurra daga frest til þess að láta Almenna leigufélagið hætta þessum grimmdarverkum og koma því þannig fyrir að leiga félagsins hækki ekki umfram verðlag og að leigjendum verði tryggt húsnæðisöryggi. Hafi það ekki verið gert innan fjögra daga mun VR taka allt sitt fé úr eignastýringu hjá Kviku banka sem er um 4,2 milljarðar króna.
Hér fyrir neðan er dæmi um póst frá Almenna leigufélaginu til leigjanda sem sendur var fjórum dögum fyrir 5. febrúar.
„Góðan dag,
Nú líður að lokum leigusamnings þíns um íbúðarhúsnæði við xxxxxx nr. xx, 108 – Reykjavík og langar okkur því að bjóða þér að endurnýja hann. Samningurinn rennur út þann 31.03.2019. Við getum boðið þér tveggja ára leigusamning á kr. xxx.xxx,- á mánuði. Vinsamlegast staðfestu endurnýjun fyrir þriðjudaginn 5. febrúar með því að svara þessum pósti. Við biðjum þig jafnframt um að láta okkur vita viljir þú ekki endurnýja samninginn.
Endilega vertu í sambandi við okkur sem fyrst með hvað þú hyggst gera.“
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    183 deilingar
    Share 73 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?