• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 22. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Nýtt tilraunaverkefni lögreglu og Hafnarfjarðarbæjar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. mars 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Hafnarfjarðarbær hafa tekið höndum saman og komið á samstarfs- og þróunarverkefni sem hefur þann tilgang að efla samvinnu þessara aðila í málum barna og unglinga. Um er að ræða tilraunaverkefni til eins árs sem fer af stað nú um miðjan mars og hlýtur styrk frá Lýðheilsusjóði.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, hefur haft forgöngu um verkefnið og hefur Hafnarfjarðarbær komið að undirbúningi sl. mánuði. Sigríður Björk segir reynsluna vera þá að þverfaglegt samstarf skili mun meiri árangri en þegar einingar vinna hver fyrir sig og þarna sé unnið að afbrotavörnum í víðu samhengi. Með þessu tilraunaverkefni fái lögreglan tækifæri til að gera betur í málefnum barna og unglinga, en þeir hópar séu lögreglu ofarlega í huga. Verkefnið felur í sér nána samvinnu lögreglunnar og þeirra sem vinna að málefnum barna og ungmenna hjá sveitarfélaginu.
Má þar nefna barnavernd, heimilisofbeldisteymi og aðkomu að forvarnarstarfi í grunn- og leikskólum, félagsmiðstöðvum og ungmennahúsi svo eitthvað sé nefnt.
Birgir Örn Guðjónsson, lögreglumaður, sinnir verkefninu af hálfu lögreglunnar en mun hafa aðsetur í Ráðhúsi Hafnarfjarðar að Strandgötu 6.
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Rósa Guðbjartsdóttir, fagnar þessu áhugaverða nýsköpunarverkefni og þar með aukinni samvinnu Hafnarfjarðarbæjar við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. “Þetta tilraunaverkefni fellur afar vel að áherslum okkar í BRÚNNI, verkefni sem hefur verið í þróun síðustu mánuði og felur í sér að brugðist er fyrr við málum og áhersla lögð á að auka þjónustu við fjölskyldur á fyrri stigum. Samvinnuverkefni lögreglunnar og Hafnarfjarðarbæjar fellur einnig vel að áætlunum sveitarfélagsins um Barnvænt sveitarfélag sem unnið verður í samvinnu við UNICEF” segir Rósa.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    149 deilingar
    Share 60 Tweet 37
  • Líkamsárás í Úlfarsárdal

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Fjársvik: Selur mörgum sama gáminn sem ekki er til

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Tvö umferðarslys – Ekið á tvöföldum hámarkshraða, svipting og sektir

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?