,,Fólk í sárri neyð hefur komið grátandi, fólk sem á ekki fyrir mat á sama tíma og hjálparstofnanir hafa þurft að loka“
Vaxandi neyð hjá öryrkjum vegna Covid-19
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins segir að aldrei fyrr hafi það verið mikilvægara að fatlað fólk fái þá aðstoð sem það þarf og að örorkulífeyrir tryggi mannsæmandi líf.
„Ég hef í dag tekið við símtölum frá fólki í sárri neyð og hingað hefur komið grátandi fólk sem á ekki fyrir mat á sama tíma og hjálparstofnanir hafa þurft að loka. Það er náttúrulega skammarlegt að fátækt fái að þrífast í samfélagi okkar, en núna snýst þetta um svo miklu meira“
Catalina Devandas, sérstakur skýrslugjafi Mannrétindaráðs Sameinuðu þjóðanna, segir lítið hafa verið gert til að veita fötluðu fólki stuðning og upplýsingar, svo hægt sé að vernda það meðan Covid-19 faraldurinn gengur yfir.
,,Fötluðu fólki finnst það afskipt” segir hún. ,,Það getur verið ógjörningur fyrir þá sem reiða sig á stuðning annara til daglegra athafna svo sem að nærast, klæðast og þrífast, að fylgja sóttvarnarleiðum eins og sóttkví og að viðhalda fjarlægð” Hún segir þennan stuðning lífsnauðsynlegan og að ríki heims verði að grípa til viðeigandi aðgerða til að tryggja áframhaldandi stuðning í því neyðarástandi sem nú ríkir.
Þá hefur NPA miðstöðin sent beiðni til Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra þess efnis að starfsfólk í NPA þjónustu verði á lista yfir þær starfstéttir sem fá forgang að þjónustu leik- og grunnskóla til að geta sinnt störfum sínum fyrir fatlað fólk sem nýtur NPA þjónustu. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um mikilvægi þess.
Catalina Devandas leggur einnig áherslu á afkomutryggingar fatlaðs fólks. ,,Aukinn fjárhagsstuðningur er líka bráðnauðsynlegur til að draga úr þeirri hættu að fatlað fólk og fjölskyldur þeirra dragist inn í meiri fátækt eða meiri hættu” Hún leggur áherslu á að ríki heims hafi ríkari ábyrgð að gegna gagnvart fötluðu fólki sökum þeirra innbyggðu mismununar sem fatlað fólk býr við.
Catalina Devandes hvetur einnig aðildarríki Sameinuðu þjóðanna til að hafa samráð við samtök fatlaðs fólks og hafa þau við borðið í allri vinnu við viðbrögðum við því sóttvarnarástandi sem nú ríkir.
https://gamli.frettatiminn.is/fresta-tharf-afborgunum-a-husnaedislanum-i-sex-manudi-og-taka-verdtrygginguna-ur-sambandi/
https://gamli.frettatiminn.is/i-rikasta-landi-heims-er-fataekt-mannanna-verk/