• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Aukið lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. apríl 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

,,Nauðsynlegt er að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra með skýrari reglum um að stjórnarmenn megi ekki eiga eignarhlut eða stunda viðskipti fyrir eigin reikning í fyrirtækjum sem lífeyrissjóðurinn á hlut í eða stundar viðskipti við. Jafnframt þarf að tryggja að opinbert eftirlit sé með hagsmunum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða svo að grípa megi til aðgerða ef kemur til hagsmunaárekstra.“

,,Tryggjum sjóðsfélögum aukið vald í málefnum lífeyrissjóðanna, komum í veg fyrir hagsmunaárekstra og spillingu.“ Þannig hljómar kynning Flokks fólksins á tillögu til þingsályktunar vegna lífeyrissjóða í landinu sem að hafa verið gagnrýndir harðlega undanfarin misseri.
Með tillögu þessari til þingsályktunar er lagt til að Alþingi álykti að fela fjármála- og efnahagsráðherra að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga sem hafi það að markmiði að auka lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum. Lagt er til að frumvarpið feli í sér skýr ákvæði sem tryggi sjóðfélögum aukið vald í málefnum lífeyrissjóðanna, að stjórnir þeirra séu með skýrt umboð sjóðfélaga, að ekki séu líkur á hagsmunaárekstrum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra við hagsmuni lífeyrissjóðanna og sjóðfélaga og aukið eftirlit með hagsmunaskráningu til að koma í veg fyrir hugsanlega hagsmunaárekstra.
Eftir kjarasamningana vorið 1969 hafa stjórnir lífeyrissjóðanna almennt verið skipaðar til helminga af Samtökum atvinnulífsins fyrir hönd launagreiðenda og af viðkomandi stéttarfélagi, en án aðkomu hins almenna sjóðfélaga sem er þó ásamt launagreiðanda skyldaður til að greiða í „lífeyrissjóði viðkomandi starfsstéttar eða starfshóps“. Launagreiðendur hafa ávallt tilnefnt fulltrúa til setu í stjórnum lífeyrissjóða og á það sér sögulegar skýringar og grundvallaðist í upphafi á húsbóndaábyrgðinni.
Mikil breyting hefur orðið á húsbóndaábyrgðinni og framfærsluskyldu almennt. Framfærsluskyldan er að mestu komin yfir til opinberra aðila og hvílir meginþunginn á sveitarfélögunum en nokkur hluti er hjá ríkinu. Fáum dettur í hug að launagreiðandi hafi skyldu til að framfæra fyrrverandi starfsmenn, hvort sem þeir hafa hætt störfum sökum aldurs eða vegna örorku. Þannig hefur hin forna húsbóndaábyrgð flust yfir til Tryggingastofnunar ríkisins, skattkerfisins (barna- og vaxtabætur), lífeyrissjóða, húsaleigubóta og félagsþjónustu sveitarfélaga. Því er ekki lengur sama ástæða fyrir því að launagreiðendur eigi sæti í stjórn lífeyrissjóða. Þá hafa sjóðfélagar mikilla fjárhagslegra hagsmuna að gæta og því þykir flutningsmönnum rétt og eðlilegt að þeir fái að taka beinan þátt í starfsemi og stefnumótun lífeyrissjóða með þátttöku og kosningarétti á ársfundum sjóðanna.

Inga Sæland

Það hefur sýnt sig í umræðu síðustu ára að almenningur er ekki ánægður með ríkjandi kerfi þar sem almenningi er jafnan ekki tryggð aðkoma að rekstri lífeyrissjóða sem hann er þó lögþvingaður að greiða í. Mikilvægt er því að færa valdið aftur til sjóðfélaga og setja um það skýrar reglur. Er því lagt til að í frumvarpi því sem lagt verði fyrir Alþingi verði m.a. kveðið á um að stjórn lífeyrissjóða boði til félagsfunda í samræmi við samþykktir sjóðanna og atkvæðisréttur sjóðfélaga á félagsfundi fari eftir áunnum og framreiknuðum iðgjöldum þeirra eftir nánari ákvæðum í samþykktum sjóðanna. Eðlilegt er þó að sjóðfélagi geti veitt öðrum skriflegt umboð til að fara með atkvæði sitt á félagsfundum. Þá telja flutningsmenn rétt að lögfesta ákvæði sem tryggi að kosning stjórnar sé tekin fyrir á hverju ári.
Nauðsynlegt er að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra með skýrari reglum um að stjórnarmenn megi ekki eiga eignarhlut eða stunda viðskipti fyrir eigin reikning í fyrirtækjum sem lífeyrissjóðurinn á hlut í eða stundar viðskipti við. Jafnframt þarf að tryggja að opinbert eftirlit sé með hagsmunum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða svo að grípa megi til aðgerða ef kemur til hagsmunaárekstra. Því er lagt til að í frumvarpinu verði Fjármálaeftirlitinu falið að halda skrá um fjárhagslega hagsmuni og trúnaðarstörf stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða og jafnframt að hafa eftirlit með því að þeir hagsmunir og þau trúnaðarstörf myndi ekki hagsmunaárekstra gagnvart hagsmunum lífeyrissjóðs og sjóðfélaga.
https://www.fti.is/2019/03/10/formadur-vr-lysir-onytu-islensku-fjarmalakerfi-og-lifeyrissjodum/

Tillaga til þingsályktunar 

um aukið lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum.
Flm.: Inga Sæland, Jónína Björk Óskarsdóttir.
Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga sem hafi það að markmiði að auka lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum. Frumvarpið feli m.a. í sér ákvæði sem tryggi að:
a.      Sjóðfélagar fari með æðsta vald í málefnum lífeyrissjóða með því m.a. að stjórn lífeyrissjóða boði til félagsfunda í samræmi við samþykktir sjóðanna og atkvæðisréttur sjóðfélaga á félagsfundi fari eftir áunnum og framreiknuðum iðgjöldum sjóðfélaga eftir nánari ákvæðum í samþykktum sjóðanna.
b.      Stjórnir lífeyrissjóða séu kosnar ár hvert á ársfundi sjóðs.
 c.      Stjórnarmenn og framkvæmdastjórar í lífeyrissjóðum megi ekki eiga eignarhlut eða stunda viðskipti fyrir eigin reikning í fyrirtækjum sem lífeyrissjóðurinn á hlut í eða í þeim fyrirtækjum sem sjá um fjárfestingar fyrir hönd lífeyrissjóðs.
d.      Fjármálaeftirlitið haldi skrá um fjárhagslega hagsmuni og trúnaðarstörf stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða.
e.      Fjármálaeftirlitið hafi eftirlit með því hvort hagsmunir stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða samrýmist þeim reglum sem gilda um störf þeirra.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    155 deilingar
    Share 62 Tweet 39
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    100 deilingar
    Share 40 Tweet 25
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?