Bingó getur verið spennandi eins og kunnugt er en það heyrir þó til undantekninga að til slagsmála komi
Páskahelgin byrjar vel og var nóttin hin rólegasta hjá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu
Lögregla var kölluð til aðstoðar við Gullöldina. þar hafði kona verið ósátt við störf bingóstjóra kvöldsins og verið að saka hann um svindl, kom þá önnur kona bingóstjóranum til varnar og fannst vegið að honum en var hún þá slegin í andlitið.
Þá voru 9 teknir fyrir akstur undir áhrifum áfengis og eða fíkniefna og voru 4 af þeim sviptir ökuréttindum og 3 án ökuréttinda, einnig voru 2 með fíkniefni í fórum sínum.
Lögreglan vill að lokum koma að eftirfarandi tilkynningu: Okkur berast ábendingar af ýmsu tagi í gegnum þennan miðil, sumar mis áríðandi. Í sumum tilfellum hefði verið betra að hringja í 112 og upplýsa lögreglu um málið. Sem dæmi um slíkt má nefna grunsamlegar mannaferðir, ábendingar um vímaða ökumenn, grun um yfirstandandi ofbeldisverk o.m.fl.
112 er almennt útkallsnúmer lögreglu, fyrir stórt og smátt. Ef þú telur að málið þoli ekki bið, þá er um að gera að hringja. Í framhaldinu má auðvitað senda skilaboð ef svo ber undir. Þessi síða er ekki stöðugt vöktuð og því getur liðið talsverður tími frá því að boð eru lögð inn uns þeim er svarað. Góða páska.